139. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[17:14]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég vil við lok þessarar atkvæðagreiðslu þakka fjárlaganefnd alveg sérstaklega fyrir mikil og vel unnin störf og ekki síst formanni hennar, Oddnýju Harðardóttur, sem er fyrsta konan sem gegnir embætti formanns fjárlaganefndar. Það spillir örugglega ekki fyrir að hún er kennaramenntuð eins og kom fram fyrr við þessa löngu atkvæðagreiðslu.

Innihald þessa frumvarps er að sönnu býsna erfið birtingarmynd þeirra óskapa sem gengu yfir Ísland á árinu 2008 en það má líka segja að það sé til marks um að við erum að ná tökum á ástandinu, við erum að ná miklum árangri í ríkisrekstrinum eins og m.a. nýjar tölur eftir fyrstu 10 mánuði þessa árs bera með sér og við erum sannarlega á réttri leið út úr kreppunni og erfiðleikunum. Það sem hefur verið rætt í dag skiptir miklu máli í þeim efnum. Það urðu fróðlegar umræður um hinn þungbæra vaxtakostnaðarlið sem ég velti dálítið fyrir mér í hvaða samhengi voru við atkvæðaskýringar almennt að öðru leyti. Allir voru sammála um að það væri vont að borga 73 þús. millj. kr. í vexti (Forseti hringir.) en mjög margir lögðu hins vegar til að hækka þá tölu.