breytingar á fjárlagafrumvarpinu.
Frú forseti. Við atkvæðagreiðslu eftir 2. umr. fjárlaga kom í ljós að ekki var fullur stuðningur í stjórnarliðinu við fjárlagafrumvarpið og síðan lesum við um það í fjölmiðlum í dag að einhverjir þingmenn úr Vinstri grænum séu að vinna að enn frekari breytingum á því en mælt var fyrir við 2. umr. Mig langar til að bera það undir hæstv. fjármálaráðherra hvort það sé þannig að fyrir utan fjárlaganefndina sé verið að vinna tillögur sem hann getur greint okkur frá og um hvað þær eigi þá að snúast. Eftir því sem maður les í fjölmiðlum er annars vegar verið að tala um að draga úr niðurskurðinum og finna nýjar tekjuöflunarleiðir en af samtölum mínum við fulltrúa míns flokks í fjárlaganefnd kannast menn ekki við að þessi mál séu þar til umræðu.
Spurning mín til hæstv. fjármálaráðherra er um það hvort hann geri ráð fyrir því að fyrir 3. umr. verði dregið enn frekar úr niðurskurðinum og hvort ríkisstjórnin sé með á prjónunum einhverjar nýjar tekjuöflunarleiðir sem ekki hefur áður verið mælt fyrir í þinginu.