139. löggjafarþing — 46. fundur,  13. des. 2010.

breytingar á fjárlagafrumvarpinu.

[10:33]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Fjárlaganefnd er að leggja lokahönd á, það ég best veit, breytingartillögur og lokaafgreiðslu fjárlagafrumvarps fyrir 3. umr. í dag og lýkur því vonandi fyrir kvöldið þannig að áætlun um að hefja umræðuna eins og vera bar samkvæmt þingsköpum standist og við hefjum 3. umr. um fjárlög á miðvikudag. Að sjálfsögðu er efni þessa frumvarps erfitt og það er ekkert nýtt að menn hafi rætt mikið hvaða svigrúm sé til staðar til að milda aðgerðir á ýmsum sviðum og stigin mjög stór skref í þeim efnum við 2. umr., sérstaklega dregið úr niðurskurðaráformum í heilbrigðisþjónustunni, ég held að allir hv. þingmenn hljóti að fagna því. Nokkrum málum var vísað milli umræðna og fjárlaganefnd sjálf kallaði nokkur atriði aftur en þær breytingar sem nú er gert ráð fyrir eru ekki allar jafnstórar í sniðum að sjálfsögðu og var við 2. umr. enda svigrúmið afar takmarkað ef markmiðin um jákvæðan frumjöfnuð á greiðslugrunni eiga að nást. Eftir því sem ég best veit er fjárlaganefnd og þeir þingmenn sem eru að fylgjast með framvindu málsins að skoða hvað hægt sé að gera án þess að þetta markmið fari fyrir borð og niðurstaðan af þeirri vinnu mun væntanlega birtast mönnum í breytingartillögum fyrir 3. umr.

Ég held að ég geti ekki farið að tjá mig um þetta út frá einhverjum véfregnum í Morgunblaðinu, það hefur reynst heimild af því tagi að ég held að við gerðum lítið annað á þingi en að ræða fram og til baka um sannleikann sem þar birtist ef við hefðum hann almennt að leiðarljósi. Ég hvet hv. þm. Bjarna Benediktsson, sem og aðra, til að bíða rólegur og sjá hvernig málið verður lagt upp til afgreiðslu við 3. umr.