niðurstaða loftslagsráðstefnu í Mexíkó.
Frú forseti. Mig langar af þessu tilefni til að nefna fleiri þætti sem íslenska samninganefndin hefur sérstaklega lagt áherslu á í sinni vinnu og það eru sjónarmið kynjajafnréttis og virkari þátttöku kvenna í ákvarðanatöku. Það er fyrir verk samningafólks okkar úr utanríkis- og umhverfisráðuneytunum að texti þess efnis sem Ísland hefur lagt til er víða í Kankún-samkomulaginu, þar á meðal í inngangi sem fjallar um sameiginlega sýn á lausn loftslagsvandans. Þar erum við að tala um sjónarmið kynjajafnréttis í heild og aðkomu kvenna á öllum stigum ákvarðanatöku. Þetta er ekki síst mikilvægt í þróunarríkjunum og hefur orðið til þess að norrænir fulltrúar og fulltrúar Afríkuríkja hafa myndað með sér mikilvægt, sterkt og gott bandalag í þágu kynjajafnréttis í þessum málaflokki eins og fleirum.