orka í jörð í Þingeyjarsýslum.
Virðulegur forseti. Það ber að þakka fyrir þessa ágætu umræðu. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir afskaplega gott svar og vel undirbúið og mættu margir aðrir ráðherrar taka sér það til fyrirmyndar.
Hvað varðar atvinnuuppbyggingu á þessu svæði finnst mér einu gilda í hvaða verkefni verður ráðist, hvort það heitir álver eða gróðurhús eða eitthvað þar á milli, það má einu gilda að mínu viti. Ég hef svo sem enga sérstaka fordóma gagnvart álverum frekar en öðrum fyrirtækjum á landinu. Aðalatriðið er að orkan á þessu svæði verði nýtt. Eins og fram kom í svari hæstv. ráðherra er orkan þó ekki í hendi og því lagði ég áherslu á að betur færi á því að fara hægar af stað en hraðar þegar ófyrirséð orka er annars vegar, svo sem eins og jarðvarmi. Ég tel því mjög eðlilegt að uppbygging í atvinnumálum á þessum svæði í krafti orkunnar verði áfangatengd og menn byrji í smærri einingum og geti svo eftir atvikum, eftir því sem orkan streymir úr jörðu, bætt þar við.
Mér finnst mjög mikilvægt að þessi tala liggi fyrir. Hún hefur, sumpart vegna pólitísks hráskinnaleiks, verið mjög á reiki en hér er hún komin á borðið frá hæstv. ráðherra, 440–590 megavött. Það er afskaplega þarft fyrir umræðuna að sú tala sé klárlega á borðinu en menn séu ekki að vísa í einhverjar allt aðrar tölur í þessari umræðu. Þingeyingar eiga það skilið að þessi orka í iðrum jarðar fari að vinna fyrir þá. Atvinnuleysi hefur verið á svæðinu í þeim skilningi að þaðan hefur fólk flutt vegna þess að það fær ekki nóg að gera. Fólki hefur fækkað þar um 15% á síðustu árum á sama tíma og þjóðinni sjálfri hefur fjölgað um þá sömu prósentutölu.