139. löggjafarþing — 46. fundur,  13. des. 2010.

álagning virðisaukaskatts á sölu vef- og rafbóka, hljóðbóka, nótnabóka, landabréfa o.þ.h.

175. mál
[12:04]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Því er til að svara að þessi mál hafa verið talsvert til skoðunar í fjármálaráðuneytinu, bæði verklag vegna álagningar virðisaukaskatts á sölu vef- og rafbóka, hljóðbóka, nótnabóka, landabréfa og því um líku og mat á því hvort þörf sé á breytingum á því fyrirkomulagi sem þarna hefur verið við lýði. Samkvæmt lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt hefur bók verið talin fela í sér áþreifanlega vöru sem innihaldi texta í meginmáli. Skilyrðið um texta leiðir til þess að 7% skatthlutfallið tekur almennt ekki til bóka án texta í meginmáli. Þó falla þar undir myndabækur með íslenskum texta, t.d. barnabækur og listaverkabækur og annað því um líkt þó texti sé ekki stórvægilegur. Það sama gildir um nótnabækur enda sé texti með nótunum. Undir 7% virðisaukaskattshlutfallið falla enn fremur landabréfabækur, atlasar og kort sem hafa að geyma þematískar upplýsingar, t.d. upplýsingar um veðurfar, jarðfræði, hafstrauma, sólkerfi eða eitthvað í þeim dúr.

Hljóðupptökur af lestri þeirra bóka sem bera 7% virðisaukaskatt falla jafnframt undir lægra skatthlutfallið. Sú breyting var gerð með það að markmiði að jafna stöðu þeirra sem ekki geta notið bóka með lestri, þ.e. sem bera 7% skatthlutfall, svo sem eins og blindir, sjónskertir og aldraðir. Prentvarningur sem ekki telst til bókar í skilningi laganna ber hins vegar 25,5% virðisaukaskatt. Það fer því eftir eðli prentvarningsins sem um ræðir hvort hann ber þessi nefndu 7% eða fullan virðisaukaskatt.

Sala á vef- og rafbókum í stafrænu formi hefur samkvæmt ákvæðum virðisaukaskattslaga verið talin fela í sér sölu á þjónustu en hún ber 25,5% virðisaukaskatt. Í þessu sambandi ber að geta þess að Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, hefur gengið út frá nákvæmlega sömu aðgreiningu. Skattaleg aðgreining á áþreifanlegum bókum annars vegar þar sem litið er á slíkar bækur sem vörur og vef- og rafbókum með stafrænu efni hins vegar þar sem litið er á slíkar bækur sem þjónustu í skilningi virðisaukaskattslaga er viðurkennd hjá OECD og öðrum alþjóðastofnunum. Það er ekki hægt að horfa fram hjá nauðsyn þess að þarna sé byggt á samræmdri túlkun meðal allra aðildarríkja t.d. OECD til að tryggja hlutleysi og skilvirkni í skattalegu tilliti. Það eru þau rök sem fyrst og fremst hafa verið nefnd fyrir því að halda sig við þessa aðgreiningu. Annars færum við aðra leið en þau lönd sem við berum okkur saman við.

Mat ráðuneytis, eftir að hafa yfirfarið þetta verklag, er að ekki standi sterk rök til að gera þarna breytingar á að svo komnu máli. Það er þó svo sem aldrei neitt endanlegt eða óumbreytanlegt í þeim efnum. Ég leyfi mér að minna á í því sambandi að verið er að fara yfir skattkerfið í heild sinni í viðamiklu samstarfi þar sem m.a. er ákveðin verkefnisstjórn og síðan breitt samráð við fjölmarga aðila, þar á meðal alla þingflokka, samtök á vinnumarkaði og fleiri slíka. Í þessu samstarfi á Bandalag íslenskra listamanna fulltrúa sem ötullega hefur komið ýmsum sjónarmiðum þeirra á framfæri. Það verður því örugglega unnið að þessu áfram og farið yfir það á fyrstu mánuðum næsta árs. Meiningin hefur verið sú að þessu samstarfi ljúki með viðamikilli skýrslu ef mögulegt er, sem kæmi út einhvern tíma á fyrri hluta næsta árs eða fyrir mitt næsta ár. Þá verða þessi efni m.a. yfirfarin eins og fjölmörg önnur sem hafa verið undir í þessu samstarfi.

Frá þessum hópi kom áfangaskýrsla í lok ágúst sem tók kannski meira á því sem var næst okkur í tíma og sneri að skattbreytingum sem gengið hafa í gegn og því sem tengist afgreiðslu fjárlaga núna. En skattkerfið í heild sinni og viðamikil úttekt á því er sem sagt í gangi og þetta, eins og margt annað, er þar undir.

Þetta eru í raun þau svör sem ég get veitt um málið á þessu stigi.