álagning virðisaukaskatts á sölu vef- og rafbóka, hljóðbóka, nótnabóka, landabréfa o.þ.h.
Forseti. Þetta svar veldur nokkrum vonbrigðum vegna þess að í því er ákaflega lítið nýtt frá því að umsögn ríkisskattstjóra barst þinginu 18. mars 2009. Það eina sem má telja til nýjunga í svarinu er að starfsmenn hæstv. fjármálaráðherra eða skattyfirvalda hafa leitað sér raka hjá alþjóðastofnunum. Um þær alþjóðastofnanir er það að segja að við stöndum ekki í neins konar skylduskattsamstarfi við þær og þó að sjálfsagt sé að fylgja flokkun þeirra eins og hægt er í íslenskum skattalögum og skattvinnureglum þá höfum við hagað skattkerfi okkar eins og okkur sýnist, m.a. með þeirri breytingu sem gerð var þegar hæstv. núverandi fjármálaráðherra var í ríkisstjórn í forsætisráðherratíð Steingríms Hermannssonar og bækur voru þá undanþegnar virðisaukaskatti sem leiddi síðan til þeirrar stöðu sem nú er uppi.
Það eru augljós rök, forseti, þ.e. menningarleg, menntaleg og samkeppnisleg rök, fyrir því að bækur og textar í öðru formi en prentuðu séu afgreidd með sama hætti og prentbækur og þær aðrar vörur sem nefndar hafa verið í þessari umræðu, hljóðbækur, nótnabækur, landabréf o.fl. Þetta sé samræmt. Starfsmenn fjármálaráðuneytisins hafa greinilega ekki gert annað en athuga vefsíðuna hjá OECD og víðar en ekki unnið í málinu eins og átti að gera. Þetta veldur mér verulegum vonbrigðum. Fyrirspurnin var flutt til að vita hvort eitthvað væri að gerast í málinu og niðurstaðan er sú að ekkert er að gerast í málinu. Þess vegna þarf þingið að taka sjálfstæða afstöðu til þess hvort eitthvað eigi að gera með þeim hætti sem þingið gerir, að taka fyrir frumvörp og samþykkja þau eða ekki.