139. löggjafarþing — 47. fundur,  14. des. 2010.

störf þingsins.

[11:35]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég verð að hryggja hv. þingmann með því að ég er ekki búin að lesa þess bók. Hún er svo sannarlega á jólagjafaóskalistanum mínum og ég sótti fund um daginn þar sem höfundur bókarinnar og tveir ágætir stjórnmálamenn fjölluðu um hana. Þarna er á ferðinni mjög áhugavert efni, sérstaklega fyrir sagnfræðinga. Það er fjallað um árabilið sem hv. þingmaður vísaði í, held ég 1956–1958, og ég verð að játa að ég get ekki svarað spurningu hv. þingmanns um persónunjósnirnar vegna þess að mér er alls ekki kunnugt um hvort þær hafi einhvern tímann átt sér stað. Ég veit þó að þær eru ekki viðhafðar núna, a.m.k. ekki þannig að mér sé kunnugt um þær, þannig að það er mitt svar eftir minni bestu vitneskju. Hvað það varðar að gera þetta efni aðgengilegt á netinu verð ég að vísa til þeirra sem hafa aðgang að þessu efni. Það er ekki á mínu forræði. Þetta er frekar snubbótt svar en það er vegna þess að meira veit ég ekki um málið. (Gripið fram í: Ert þú ekki áhrifamaður?)