139. löggjafarþing — 47. fundur,  14. des. 2010.

Stjórnarráð Íslands.

302. mál
[14:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Róberti Marshall getur orðið að ósk sinni um efnislega umræðu um þetta mál umsvifalaust ef hann biður um orðið. Ég get ekki beðið um orðið á eftir eigin ræðu en ég held að það sé afskaplega mikilvægt að fara yfir málið.

Ef hv. þingmaður vill breyta lögum um opinbera starfsmenn þá hvet ég hann til dáða og lofa því að ég skuli vera með honum í því máli. Ég tek það sem svo að við setjumst bara niður sem allra fyrst og undirbúum það því að það er mjög mikilvægt.

Varðandi meint bákn og hvort sá sem hér stendur vilji fá það burt þá hefur það nú verið lífsskoðun mín að ríkið eigi að gera lítið og vel í staðinn fyrir mikið og illa, en það er afskaplega mikilvægt að gera hlutina vel. Við erum ekki að gera hlutina vel núna. Hv. þm. Róbert Marshall sagði að það væri gott að gera heildarúttekt á þessu. Án nokkurs vafa, það hefur ekki verið gert. Það eru engin gögn sem liggja til grundvallar þessum breytingum, engin. (RM: Dr. Gunnar Helgi.) Hér kallar hann að helsti fræðimaður Samfylkingarinnar, dr. Gunnar Helgi Kristinsson, hafi skrifað skýrslu. Ég hvet hv. þingmann til að lesa hana. (Gripið fram í.) Já, þar segir hann sérstaklega að það þurfi að skoða þessa hluti miklu betur áður en farið sé í breytingar á ráðuneytunum. Sá fræðimaður fer sérstaklega yfir að mörg ráðuneytin séu of lítil, of litlar einingar. Ég get alveg lofað því að þá er ekki verið að vísa til stóru ráðuneytanna, það er ekki verið að því. Það má mörgu breyta í þeim ráðuneytum og það er stórt verkefni en við erum að gera allt miklu erfiðara með þessum flumbrugangi núna.

Ég hvet hv. þingmann til þess að taka þessa umræðu eins og hann talaði um. Hann gerir það með því að biðja um orðið og þá getum við rætt þetta áfram. (Forseti hringir.) Öðruvísi getum við það ekki vegna þess að ég get ekki, virðulegi forseti, beðið um orðið á eftir eigin ræðu.