almenn hegningarlög.
Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á almennum hegningarlögum, með síðari breytingum. Þetta er hinn svokallaði samningur Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu eða spillingarsamningurinn sem við tókum til umfjöllunar í sumar.
Við höfum fjallað um þetta mál í allsherjarnefnd og fengið á okkar fund fulltrúa dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins.
Frumvarpið var sent til umsagnar á 138. löggjafarþingi og bárust þá umsagnir frá Fjármálaeftirlitinu, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Ríkisendurskoðun, ríkislögreglustjóra, ríkissaksóknara og Viðskiptaráði Íslands sem allar voru jákvæðar.
Með þessu frumvarpi er lögð til breyting á lögsöguákvæðum almennra hegningarlaga í samræmi við ákvæði 42. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu. Lagt er til að við 6. gr. laganna bætist nýr töluliður sem heimili að maður verði sóttur til saka eftir íslenskum hegningarlögum fyrir brot sem falla undir samning Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu, enda þótt þau séu framin utan íslenska ríkisins og án tillits til þess hver sé valdur að þeim.
Tildrög þessa frumvarps er fyrirhuguð aðild að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu frá 31. október 2003. Markmið samningsins er að stuðla að og styrkja ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir og berjast gegn spillingu með skilvirkari og árangursríkari hætti, styðja alþjóðlega samvinnu og tæknilega aðstoð m.a. í tengslum við að endurheimta fjármuni og stuðla að ráðvendni, áreiðanleika og jafnframt að stuðla að góðri opinberri stjórnsýslu og umsýslu opinberra eigna. Í ákvæðum samningsins er m.a. kveðið á um refsinæmi þess að múta innlendum eða erlendum opinberum embættismönnum og mönnum innan einkageirans. Einnig er kveðið á um refsinæmi áhrifakaupa, þ.e. þegar embættismaður eða annar maður sem hefur raunveruleg eða ætluð áhrif á ákvarðanatöku í tilteknu máli skiptir þeim áhrifum út fyrir óviðeigandi ávinning. Þá eru í frumvarpinu ákvæði um refsinæmi peningaþvættis og kveðið á um ábyrgð lögaðila.
Málið tengist nýsamþykktum lögum, nr. 86/2010, sem ætlað er að skapa lagalega umgjörð um siðareglur fyrir ríkisstarfsmenn og ráðherra.
Nefndin telur mikilvægt að tryggja alþjóðlega samvinnu í baráttu gegn spillingu og telur að með þessu frumvarpi og aðild að samningnum sé stigið mikilvægt skref til þess að koma í veg fyrir að þeir sem hafa brotið gegn ákvæðum samningsins erlendis geti komist hjá refsingu með því t.d. að dvelja hér á landi.
Nefndin leggur til að þetta frumvarp verði samþykkt. Hv. þm. Vigdís Hauksdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir það rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Atli Gíslason, Mörður Árnason, Birgir Ármannsson, Valgerður Bjarnadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Sigurður Kári Kristjánsson og Þráinn Bertelsson.