sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Ég bið hv. þingmann afsökunar ef ég var ekki nógu skýr í máli mínu. Ég hélt að ég hefði tekið skýrt fram að sú kostnaðargreining sem menn voru að fara af stað með á öðrum stofnunum en Landspítalanum — ég var fyrst og fremst að vísa í þá spítala og stofnanir sem við höfum fjallað um í tengslum við fjárlögin og að sú áhersla hefur ekki verið hjá þeim eftir að ný ríkisstjórn tók við. Ég var að vísa í það, virðulegi forseti. (Gripið fram í.) Það er augljóst miðað við þessa spurningu að hv. þingmaður misskildi mig. Ég var að vísa í að það eru stofnanir, m.a. kragaspítalarnir o.fl., þar sem menn hafa ekki verið í neinni kostnaðargreiningu. Miðað við þær upplýsingar sem við höfum fengið í hv. heilbrigðisnefnd hefur áhersla ráðuneytisins ekki verið á því og það kemur auðvitað bersýnilega í ljós þegar menn koma fram með þetta frumvarp.
Ég hef engar athugasemdir við þann þátt sem hv. þingmaður vísar hér í og fjallar um, sem hann þekkir auðvitað mjög vel frá þeim vinnustað sem hann er á alla jafna þegar hann er ekki hér.