sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Það veldur mér áhyggjum að hæstv. ráðherra viti ekki hvert hann eigi að fara eins og hann sagt hér orðrétt. (Gripið fram í.) Ég vona samt að hann leyfi mér að tala og grípi ekki mikið fram í, ég skal reyna að hjálpa honum að komast á rétta leið, það eitt er bara sérstakt áhyggjuefni en við skulum ekki ræða það meira hér.
Hæstv. ráðherra sagði að hér yrði engin stefnubreyting og sagðist hafa fylgst með umræðunni. Virðulegi forseti. Ég var ekki að leggja áherslu á stefnubreytingu, það voru hv. þingmenn Vinstri grænna sem sögðu: Auðvitað verður stefnubreyting, nema hvað? Og kölluðu hér fram í m.a. og brosið var svo breitt þegar ég nefndi að þeir væru augljóslega að fara þá leið að það er bara þó nokkuð síðan ég hef séð jafnfallegt bros á myndarlegum hv. þingmönnum Vinstri grænna. Ég held að hæstv. ráðherra ætti að setjast niður með þessum aðilum og komast að niðurstöðu áður en hann fer að skammast út í stjórnarandstöðuna úr ræðustóli Alþingis.
Það sem stenst ekki alveg hjá hæstv. ráðherra er þetta: Það stendur ekki á þessari stofnun, það stendur á ráðuneytinu, það stendur á hæstv. ráðherra. Það er hans að fylgja því eftir sem ég er búinn að lesa hér upp margoft varðandi tilflutning starfsmanna.
Ég vek athygli hæstv. ráðherra á því að hér er ég með plagg sem ég las upp úr í dag, að vísu í tengslum við annað mál sem ég fékk eftir mikla eftirgangssemi hjá hæstv. forsætisráðherra. Þar er verið að vísa í og talað um að verið sé að skoða þessa hluti sérstaklega í tengslum við Sjúkratryggingastofnun og Tryggingastofnun, og hv. þm. Þuríður Backman talaði um það hér að menn væru að skoða þessi mál alveg sérstaklega. Það fór ekkert á milli mála og er öllum ljóst sem hafa hlustað að hv. þingmenn Vinstri grænna telja að hér sé um stefnubreytingu að ræða frá því sem lagt var upp með þegar Sjúkratryggingar voru settar á stofn. Ef hæstv. ráðherra er ósammála því er rétt að hann setjist niður með þessum hv. þingmönnum.