139. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2010.

makríldeila við Noreg og ESB.

[10:58]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Það kann vel að vera að þessi deila magnist með þeim hætti að það verði rétt af hálfu Íslands að bregðast einhvern veginn öðruvísi við en við höfum gert. Ég vek hins vegar athygli hv. þingmanns á því að það er ekki bara Evrópusambandið heldur hefur líka önnur þjóð utan Evrópusambandsins talað um að beita einhvers konar refsiaðgerðum.

Ég ítreka hins vegar að Íslendingar kunna að reka fiskveiðideilur. Ef það er eitthvað sem þeir hafa getið sér orð fyrir er það einmitt það. Við höfum rekið þetta bara hefðbundið og við höfum náð því að öðlast rétt strandríkis. Við höfum náð því að komast að borðinu til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri og það munum við gera áfram. Við brugðumst hefðbundið við, við tókum einhliða kvóta og slógum ekkert af. Ég held að þessi deila muni eins og aðrar leysast um síðir en ítreka það sem ég sagði áðan um að ég veit ekki hvort þetta muni hafa áhrif á gang viðræðna. Það getur vel verið. Deilur eru alltaf óheppilegar en við skulum bara sjá til og eins og formaður þingflokks (Forseti hringir.) Samfylkingarinnar segir stundum. Við skulum anda í kviðinn í bili.