velferðarkerfið.
Virðulegi forseti. Þakka svör hæstv. forsætisráðherra. Þau staðfesta nákvæmlega það sem ég sagði. Öll úrræðin sem ríkisstjórnin er með eru á sviði atvinnuleysisbóta og bótaþega. Það er ekki skrýtið að verðbólgan fari niður því við erum í samdráttarskeiði sem ríkisstjórnin gerir ekkert í að snúa við. Á næstu árum munum við halda áfram að skera niður og hækka skatta með þessari stefnu. Við munum stefna út úr norrænu velferðarkerfi. Við munum stefna í kerfi sem við viljum ekki einu sinni hugsa til. Staðreyndin um minnkandi atvinnuleysi hefur eitthvað með það að gera að það flytja 10 manns á dag til útlanda, m.a. til Norðurlandanna.
Það er líka tilfellið að stefnan sem birtist í öllum málum, að ríkisvæða alla hluti í stað þess að efla einkaframtak og frelsi einstaklingsins, gerir það að verkum að menn sjá ekki mikla framtíð (Forseti hringir.) í möguleikunum. Við eigum að stækka kökuna og efla hagkerfið, þá munum við geta staðið undir aukinni velferð. Það er norrænt velferðarkerfi.