fjárlög 2011.
Frú forseti. Það er töluverð umræða út af fyrirhuguðum einkaframkvæmdum í vegagerð og rétt að nefna það mál. Um leið þakka ég hv. talsmanni 1. minni hluta fyrir málefnalega og góða ræðu og fínt samstarf í fjárlaganefndinni. Umræðan um fyrirhugaðar einkaframkvæmdir í vegagerð sem var nokkur samstaða um í þinginu fyrir tveimur árum minnir mig að heimila ríkinu í gegnum lög að stofna til slíkra einkahlutafélaga og ráðast í framkvæmdir. Eins og hv. þingmaður nefndi var þetta hugsað þannig að lífeyrissjóðirnir kæmu inn í fjármögnunina. Það var alveg fram á lokasprettinn og verður kannski þegar þetta verður loksins boðið út. Umræðan hefur snúist um útfærsluna sem liggur alls ekki fyrir. Þetta mál er óútfært með öllu.
Í síðustu viku skaut því allt í einu upp í fréttum og fjölmiðlum að lífeyrissjóðirnir og Vegagerðin hefðu farið að tala um kílómetragjald, 7 kr. á ekinn kílómetra. En forsendan fyrir umræðunni í upphafi, forsendan fyrir samstöðu um þessa stóru aðgerð í samgöngumálum sem svo sannarlega kæmi mörgum þjóðþrifaframkvæmdum á framkvæmdastigið, var að það yrði lágt samræmt gjald á allar stofnbrautir, burt séð frá framkvæmdastiginu á hverri þeirra fyrir sig. Það var talað um 150–180 kr. inn á hverja braut. Allt í einu skýtur þessu upp í umræðunni gegnum vinnugögn frá lífeyrissjóðum og Vegagerð og farið er að tala um 7 kr. á kílómetra sem stórhækki gjaldið inn á sumar stofnbrautir, mismuni fólki eftir búsetu og fleira. Algjörlega óásættanleg leið með öllu. Algjörlega óútfært. Hefur aldrei komið til tals inni á Alþingi. Aldrei komið til tals í fjárlaganefnd, samgöngunefnd eða þingflokkunum. Þess vegna er ástæða til að eyða öllum vafa um að þessar fyrirætlanir nái fram að ganga. Þær hafa aldrei fengið pólitískt bakland hér. Ég vildi fá staðfest (Forseti hringir.) í spurningu til þingmannsins, af því við ræddum þetta á einum nefndarfundinum, hvort þetta væri ekki réttur skilningur hjá mér út frá umræðunni þar og áður.