fjárlög 2011.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ásbirni Óttarssyni fyrir innlegg hans í umræðuna. Ég hef nefnt það áður hvað tryggingagjaldið varðar að það á að vera eins og aðrir tímabundnir skattar. Við erum að bregðast við mjög sérstöku ástandi sem við skulum rétt vona að verði ekki viðvarandi. Þess vegna er hækkunin í rauninni tímabundin, ætti að vera það og miðast við þær breytingar sem eru á atvinnustiginu hverju sinni. Þess vegna tek ég undir með hv. þm. Ásbirni Óttarssyni að þegar augljós breyting er orðin á atvinnustiginu ber að skila þessum peningum aftur til atvinnulífsins og reyndar sveitarfélaganna líka sem þetta gjald bitnar verulega á og hv. þingmaður þekkir ágætlega til.
Hvað varðar aukinn hagvöxt sem þarf að koma til móts við verkefni næsta árs tel ég að þeir 34 milljarðar kr. sem e.t.v. standa út af í lok næsta árs og hv. þingmaður nefndi líka, þær skuldbindingar sem tengjast Icesave sem væntanlega leggjast þar ofan á, þurfum við eins og ég gat um í lok ræðu minnar að nota þann tíma sem fram undan er, þetta heila ár fram undan, til að nota allar leiðir til að auka við hagvöxtinn svo við þurfum ekki að grípa til þessara tveggja verstu hugsanlegu leiða, annars vegar hækkunar skatta og hins vegar niðurskurðar. Við höfum alltaf þessa þriðju leið, hún er sú að bæta í, og við höfum mörg færi til að takast á við bætt og betra atvinnulíf. Kem ég kannski að því í seinna andsvari.