kynning fjárlagafrumvarps í stjórnarflokkunum -- nefndarfundur vegna söluferlis Sjóvár -- veggjöld o.fl.
Virðulegi forseti. Ég kem upp undir þessum lið vegna atburða sem hafa gerst í þjóðfélaginu. Hér var kosið til stjórnlagaþings 27. nóvember. Nú hafa tveir aðilar kært þá kosningu til Hæstaréttar. Það er einkennilegt í ljósi þess að við teljum okkar búa í lýðræðisríki að þetta er þetta ekki fyrsta frétt í öllum fjölmiðlum, eins og vera ber. Ef til vill eru fjölmiðlar örlítið að bregðast Íslendingum vegna þess að ekki er fjallað um þetta, þessi þöggun er afar undarleg. Ég vek athygli á þessu hér því að það er mjög merkilegt að búið sé að kæra kosningar á Íslandi til æðsta dómstóls landsins. Þetta ættu raunverulega að vera heimsfréttir, svo miklar athugasemdir eru gerðar við framkvæmd kosninganna að mér er sagt að þessar kærur snúist um að nánast ekkert hafi verið í lagi við kosningarnar sjálfar fyrir svo utan hvernig lesið var úr tölunum.
Mig langar að benda á þetta, virðulegi forseti, og ég undrast þá þöggun sem framkvæmdarvaldið sýnir í þessu máli. Hvar er það statt? Ég vildi gjarnan fá svör við þessu í dag eða á morgun frá framkvæmdarvaldinu. Hvernig ætlar framkvæmdarvaldið að bregðast við þessum kærum? Heldur undirbúningur stjórnlagaþings áfram eins og ekkert sé? Hvað er áætlað að Hæstiréttur taki sér langan tíma til að úrskurða um þessar kærur? Hvar er málið statt? Ríkisstjórnin verður að koma með svör í dag eða á morgun um þessi mál svo þessi leiktjöld falli. Ég hvet fjölmiðla til að taka málið upp og fjalla um þetta á opinn og gagnsæjan hátt.