kynning fjárlagafrumvarps í stjórnarflokkunum -- nefndarfundur vegna söluferlis Sjóvár -- veggjöld o.fl.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að blanda mér í þessa umræðu um vegtolla og veggjöld sem fer nú mikinn í þessum sal. Við horfum fram á það t.d. í því frumvarpi sem liggur nú fyrir efnahags- og skattanefnd um breytingar á vörugjöldum bifreiða að jarðefnaeldsneyti er á leiðinni út. Við erum að opna fyrir metangasbíla, rafmagnsbíla, vetnisbíla og við erum að fara að rukka fyrir hversu mikið bílarnir menga í staðinn fyrir þyngd þeirra eða tog.
Fram undan er mikil og stór kerfisbreyting og því verður ríkið að fara að horfa til þess með hvaða hætti það getur skattlagt notkunina á vegunum. Skattlagning verður að tengjast öðru en jarðefnaeldsneytisgjaldinu. Þess vegna hljótum við að horfa til þess til langrar framtíðar að einhvers konar notkunargjöld verði tekin upp. Ég sé alltaf þessa umræðu sem nú fer mikinn tengjast þeirri kerfisbreytingu sem er fram undan á næstu 10–15 árum. Hvernig við útfærum það er t.d. okkar hér inni að hafa skoðun á. Verður það með vegtollum, veggjöldum, verður það tengt staðsetningu eða því kerfi sem nú er að ryðja sér til rúms í Evrópu? Það kemur ekki til greina að við tengjum þetta ákveðnum leiðum og 7 kr. á kílómetrann. Það kemur ekki til greina. Það er sú nálgun á verkefnið sem við eigum ekki að taka upp. Við eigum að forðast það, við eigum frekar að horfa á almennt gjald á notkun vegna þess að við þurfum að hverfa frá skattlagningu á jarðefnaeldsneytið og við þurfum að tengja skattlagninguna við notkun á vegasamgöngum okkar með öðrum hætti.