139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[11:30]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég held að öllum sé ljóst að til þess að ná tökum á þeim vanda sem við er að glíma þarf mjög breiða og góða samstöðu. Við sjálfstæðismenn höfum í tvígang boðið fram krafta okkar til þess verks, bæði fyrir fjárlagagerðina 2010 og líka í þeirri vinnu sem nú stendur. Því hefur því miður verið hafnað. Það hefur verið einkennilegt að fylgjast með ferli þessa máls. Frá upphafi þess má segja að ekki hafi nema þrír þingmenn fylgt því allt til enda, hæstv. fjármálaráðherra og hv. þm. Björn Valur Gíslason og Mörður Árnason.

Af þeim gríðarlega fjölda breytingartillagna sem liggur fyrir sést að það hefur óðum fækkað í villikattafélaginu, heimiliskettir eru orðnir til muna fleiri í röðum stjórnarliða en áður var og ég vænti þess í þessu 20 mínútna hléi sem gert var á þingfundi hér áðan hafi enn fjölgað í þeim góða hópi og að við sjáum þess stað í atkvæðagreiðslunni á eftir.