139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[11:31]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það eru mikil vonbrigði að varnaðarorð um að fjárlögin muni dýpka kreppuna hafi ekki verið tekin alvarlega og að haldið sé dauðahaldi í efnahagsáætlun AGS þrátt fyrir að hagvaxtarforsendur hennar séu brostnar. Niðurskurður ríkisútgjalda við slíkar aðstæður mun stækka fjárlagafrumvarpið á næsta ári og krefjast meiri niðurskurðar en nú er gert ráð fyrir.

Virðulegi forseti. Ég hef ásamt hv. þm. Atla Gíslasyni og Ásmundi Einari Daðasyni lagt fram tillögur innan þingflokks VG um breytta forgangsröðun, nýja tekjuöflun og aukin útgjöld í þágu velferðar og bættra lífskjara. Þessar tillögur hlutu ekki hljómgrunn innan þingflokks Vinstri grænna. Við munum því hvorki styðja fjárlagafrumvarpið né breytingartillögur við það þar sem þær ganga of stutt að okkar mati og draga ekki úr kreppunni.

Í morgun lögðum við fram yfirlýsingu (Forseti hringir.) þar sem við útskýrum betur afstöðu okkar í þessari atkvæðagreiðslu.