fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Samkvæmt áætlunum er talið að frumjöfnuður fyrir árið 2011 verði jákvæður um 15,5 milljarða kr. Heildarjöfnuðurinn eða hallinn er hins vegar um 37 milljarðar kr. þannig að við sjáum fram á að næsta ár verði gríðarlega erfitt. Það sem hins vegar fylgir ekki sögunni þegar þessar tölur eru sagðar er að hagvaxtarforsendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ríkisstjórnarinnar samkvæmt jöfnuði í ríkisfjármálum fyrir árin 2009–2013 eru algjörlega brostnar. Samkvæmt spám verður hagvöxtur hér í besta falli upp á 1,9% en hér átti að vera samkvæmt áætlunum um 4,4% hagvöxtur.
Það sem hefur gerst með þessa ríkisstjórn er að henni tekst ekki að auka hagvöxt og hún hefur líka slakað á klónni. Það verður ekki bara næsta ár sem verður erfitt, heldur líka árin (Forseti hringir.) þar á eftir. Ég vil samt að lokum þakka fyrir samstarfið í nefndinni og tek undir það sem hér var sagt um að starfsmenn þingsins og ritarar í nefndinni hafi staðið sig með afburðum vel.