fjárlög 2011.
Frú forseti. Þessi liður er hluti af flækjunni sem var búin til þegar endurskipuleggja átti heilbrigðisþjónustu alls landsins í gegnum fjárlögin án þess að nokkur stefnumótun lægi fyrir. Það var alveg hörmulegt að fylgjast með þessu verki í fjárlaganefnd og hvernig hver heilbrigðisstofnunin á fætur annarri kom fyrir nefndina með alls konar upplýsingar, sumar sannar, sumar hálfsannar og sumar ósannar. Það var ótrúlegt að fylgjast með umræðunni og þeir sem höfðu hæst fengu mesta leiðréttingu. Menn fóru svo niður plaggið og sögðu: Það hefur lítið heyrst í þeim þarna hjá Náttúrulækningafélaginu í Keflavík. Við skulum frekar skera niður hjá þeim í staðinn. (Gripið fram í: Heyr! Heyr!) Þetta var í Hveragerði. Þetta var ótrúleg aðferð við að skipuleggja heilbrigðisþjónustu í landinu og afgreiða fjárlög. Ég hálfskammast mín fyrir þessi vinnubrögð. Ég skora á fjárlaganefnd og Alþingi að taka þessi vinnubrögð til endurskoðunar. Þetta er alveg hrikalegt að taka þátt í þessu.