fjárlög 2011.
Virðulegur forseti. Það er með mikilli gleði sem ég segi já við þessari tillögu sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi hv. þingmaður, flutti á sínum tíma. Sú er hér stendur flutti tillögu um bólusetningar barna gegn eyrnabólgum. Ég vil draga sérstaklega fram að nú er það að verða að veruleika að báðar þessar bólusetningar eru að fara í gang. Heilbrigðisráðuneytið forgangsraðaði þannig undir forustu hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur að eyrnabólgumálið er komið í höfn og nú er þingið að afgreiða með glæsibrag, næstum því fullu húsi, að bólusetningar stúlkna gegn leghálskrabbameini fari í gang.
Ég vil líka fá að hæla Alþingi til tilbreytingar fyrir þessi vinnubrögð. Fjölmargar tillögur frá þingmönnum hafa verið samþykktar upp á síðkastið og við erum m.a. að ná þeim í gagnið með atkvæðagreiðslum núna. Þetta eru ný og breytt vinnubrögð. Þetta var ekki svona. Það þótti (Gripið fram í.) stórmerkilegt ef ein og ein tillaga var samþykkt frá þingmönnum. Þetta eru breytt vinnubrögð og við eigum að vera (Forseti hringir.) mjög stolt af þeim.