139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[12:41]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Ég velti fyrir mér við 2. umr. hvernig yrði farið með þá skiptingu þegar hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. dómsmála- og mannréttindaráðherra mundu setjast niður og sagði að það yrði áhugavert að vera fluga á vegg í þeim samræðum. Ég stóð svo í þeirri meiningu að mér hefði verið boðið í kaffi af hæstv. utanríkisráðherra en það hefur nú verið svikið eins og svo margt annað [Hlátur í þingsal.] og vil ég gagnrýna það sérstaklega. Hins vegar vek ég athygli á því að þegar kemur að deilingu fjármuna eins og þessara á sú umræða að fara fram innan veggja Alþingis. Það á ekki að vera þannig að tveir ráðherrar geti vélað um þessi mál sín á milli. Það hefur engin umræða farið fram um þetta í fjárlaganefnd en nú sýnist mér að stjórnarliðar ætli að samþykkja þetta. Um leið erum við að færa völdin til framkvæmdarvaldsins, nokkuð sem við ætluðum ekki að gera. (Gripið fram í: Er ekki …?) (Gripið fram í: … tími ekki kaffibolla.) (Gripið fram í: Nei.)