139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[12:56]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Hér kemur til atkvæðagreiðslu 6 milljarða kr. heimild til að stofnað verði hlutafélag um vegaframkvæmdir víðs vegar um land. Ég vil í upphafi segja að ég fagna því að Vaðlaheiðargöng séu loks komin á kortið. Það er framkvæmd sem alla tíð hefur staðið til að hóflegt veggjald verði tekið fyrir en ég legg mikla áherslu á að það veggjald verði hóflegt. Hins vegar verð ég að gagnrýna að þær vegaframkvæmdir sem eiga að eiga sér stað á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi eru algjörlega óútfærðar. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið í hv. fjárlaganefnd stendur til að leggja um 7 kr. á 60 km kafla sem þýðir um 1.400 kr. á dag fyrir þá sem þurfa að sækja vinnu og keyra á milli Selfoss og Reykjavíkur daglega. Það er algjörlega óásættanlegt og ég leggst gegn því að tekin verði veggjöld fyrir þessa kafla. Þess vegna (Forseti hringir.) mun ég sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.