fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Það sem við erum að greiða atkvæði um er ákvörðun ríkisstjórnar gagnvart því að gefa í í atvinnulífinu í þessum mannvirkjabransa eftir að slitnaði upp úr viðræðum við lífeyrissjóðina. Þarna var brugðist vel við og ákvörðun tekin daginn eftir og leitað þessara leiða sem hér er verið að tala um.
Hitt vil ég taka skýrt fram, virðulegi forseti, og það eiga allir þingmenn að vita, að þær umræður sem nú eru í þjóðfélaginu um eitthvert kílómetragjald upp á 7 kr. eða að sé búið að ákveða hvernig veggjöld eða notendagjöld verða útfærð í framtíðinni vegna þessa eru alrangar og settar fram af aðilum sem kannski hugsa svolítið sinn gang eftir að slitnaði upp úr viðræðunum við lífeyrissjóðina og aðra aðila. Þetta eru ófullkomin vinnubrögð. Það væri hægt að dreifa mörgum öðrum hugmyndum sem voru ræddar.
Aðalatriðið er að það var samkomulag í vor um það frumvarp sem samþykkt var um að fulltrúar allra flokka í þverpólitískri nefnd hefðu næstu fjögur ár (Forseti hringir.) til að útfæra hugmyndir um notendagjöld og framtíðartekjuöflunarkerfi í vegamálum á Íslandi. (Forseti hringir.) Aldrei þessu vant þarf ekki að vera búið að því á morgun eða hinn, það er nógur tíminn til að útfæra sanngjarnar (Forseti hringir.) réttlátar hugmyndir að þessu.