fjárlög 2011.
Frú forseti. Ég hef eftir talsverð heilabrot ákveðið að greiða atkvæði með þessari tillögu. Ég legg hins vegar ríka áherslu á að ég held að það sé mjög mikilvægt að við vöndum okkur mjög vel við hvert einasta skref sem tekið verður héðan í frá varðandi þessa tilhögun og lít svo á að það sé engan veginn útkljáð með hvaða hætti verði farið í gjaldtöku og annað vegna vegaframkvæmda, en ég greiði atkvæði með þessu á þeirri forsendu að ég sé von til að við getum núna farið í mjög tímabærar og brýnar samgöngubætur sem hafa beðið. Ég treysti því að þar með verði til svigrúm annars staðar til að fara í framkvæmdir á grunngerðinni og til að ljúka við stofnvegakerfið eins og ég sagði í annarri atkvæðaskýringu fyrr í dag.