139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:33]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður oftúlkar orð mín og ég ætla ekki ofan í þessar skotgrafir. Ég tel að við getum átt málefnaleg og uppbyggileg skoðanaskipti um þennan samning sem hér liggur á borðinu og um þá stöðu sem Ísland er í nú og hvaða kostir eru vænlegastir fyrir okkur í þeim efnum. Ég held að við hljótum að geta gert það.

Auðvitað getum við líka eytt mjög löngum tíma í að ræða forsöguna, liðna atburði, og velt fyrir okkur hvort málin hefðu farið á þennan veginn eða hinn ef eitthvað annað hefði gerst en raunverulega gerðist, en við breytum í fyrsta lagi ekki hinu liðna, við eigum öll hlutdeild í því og berum öll ábyrgð gagnvart því. Það gerir hv. þingmaður líka og flokkur hans. Þetta er pólitískur veruleiki. Það geri ég svo sannarlega og ætla ekki að hlaupast undan henni. Dómur sögunnar og/eða eitthvað annað leiðir það smátt og smátt í ljós hvernig ég verð talinn hafa staðið mig í þessum efnum ásamt því góða fólki sem hefur komið að þessu máli á löngum tíma. Það eina sem ég fullyrði og hef sannfæringu fyrir er að öllum (Forseti hringir.) hefur gengið gott til og allir hafa lagt sitt af mörkum í þágu Íslands við erfiðar aðstæður. (Gripið fram í.)