139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:36]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Allir möguleikar til hagstæðari endurfjármögnunar og hraðari uppgreiðslu skuldbindinganna standa okkur opnir. Það er tekið sérstaklega fram í þeim drögum að samningi milli fjármálaráðherra og tryggingarsjóðsins sem fylgir með að allar slíkar leiðir verða að sjálfsögðu skoðaðar — nema hvað — og það hefur alltaf staðið til. Einnig gagnvart fyrri samningum vegna þess að þar áttum við sömuleiðis kostnaðarlaus uppgreiðsluákvæði. Að sjálfsögðu mun Ísland alltaf skoða þá möguleika sem í boði eru á ódýrari eða hagstæðari fjármögnun og m.a. þess vegna er mjög mikilvægt að þessir samningar eins og eldri samningar geyma kostnaðarlaus uppgreiðsluákvæði.

Reyndar hefur ýmislegt fleira breyst en það sem hv. þingmaður nefndi. Það er ekki bara vaxtakostnaðurinn og ýmis lagaleg atriði. Það er líka form samninganna sem ég hvet hv. þingmenn til að skoða. Hér er ekki um lánasamninga í grunninn að ræða heldur endurgreiðslu og tryggingarsamning og það er reynt að takmarka ábyrgð ríkisins eins og kostur er (Forseti hringir.) við þessa þætti, þ.e. bara eftirstöðvarnar af höfuðstólnum og samtímagreiðslu vaxta.