samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Frú forseti. Hv. þingmaður svaraði sér reyndar sjálfur þegar hann sagði að óvissan minnkaði með hverjum degi. Hún gerir það. Það þarf að fara ákaflega illa til að við getum a.m.k. ekki notað þá 340 milljarða kr. sem þegar eru komnir í búið. (Gripið fram í: … vitað.) Það þarf líka að ganga mjög illa til að stærsta einstaka eign búsins þar fyrir utan, sem er uppgjörsbréfið frá Nýja Landsbankanum yfir í þann gamla, gefi ekki af sér eins og ætlunin er. Bak við það standa mjög mikil verðmæti. (Gripið fram í.) En auðvitað eru áfram þeir áhættuþættir sem ég greindi og eru fyrst og fremst þrír, spurning um endurheimtuhlutfallið í búið, spurning um hvenær greiðslurnar koma sem hefur mikið efnahagslegt vægi og í þriðja lagi er spurningin um gengið. Þessu tengt er að sjálfsögðu möguleg lagaleg áhætta sem hv. þingmaður nefnir eins og neyðarlögin en þau eru allmiklu stærra mál en bara þetta. Við skulum hafa í huga að þau eru grundvöllur allrar endurreisnar nýju bankanna og það er meira undir en bara Icesave og bara staða Landsbankans (Forseti hringir.) ef þeim yrði kollvarpað. Á því hef ég enga minnstu trú, ég er mjög bjartsýnn á og sannfærður um að okkur takist að verja þau.