139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:50]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. Í því máli sem við erum að fara að ræða væri eflaust af tillitssemi við stjórnarflokkana gott að rifja ekki upp alla sögu þess, það sem gengið hefur á á þessu ári sem er að líða og á árinu 2009 og þess vegna árinu 2008, heldur láta umræðuna eingöngu snúast um efnisatriði þess samkomulags sem við erum með til umfjöllunar, en það er auðvitað algjörlega útilokað annað en að setja málið í heildarsamhengi.

Ég verð að segja alveg eins og er að auðvitað er það á sinn hátt niðurlægjandi fyrir stjórnarflokkana að vera hér með málið í þeim búningi sem það nú liggur fyrir eftir öll átökin sem hafa átt sér stað um sama mál í öðrum búningi og þetta sama fólk hefur áður talað fyrir. Þess vegna skil ég það svo sem alveg fyrir mitt leyti að stjórnarliðar séu heldur fáliðaðir í þingsal, fyrir utan ráðherrana. Þeir eru einn og tveir úr stjórnarflokkunum enda örugglega erfitt að sitja undir þeim samanburði sem gögnin sem hér liggja frammi (Utanrrh.: Við látum okkur hafa það.) bjóða upp á. (Utanrrh.: Við látum okkur hafa það.) Hæstv. utanríkisráðherra ætlar að láta sig hafa það og ég fagna því vegna þess að það þarf að fara aðeins yfir þennan samanburð þó að hann verði ekki hið eina sem ég ætla að fara yfir.

Mig langar til að byrja á að halda því til haga að allan árangur sem náðst hefur í þessari samningalotu og liggur núna fyrir í frumvarpsformi ber að þakka íslensku þjóðinni, öllum þeim sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni, mættu þar og sögðu nei við afarkostum og þvingunum Breta og Hollendinga. Við skulum ekki gleyma því, og því mun íslenska þjóðin ekki gleyma, hverjir sömdu um mörg hundruð milljarða byrðar á íslensk heimili í upphaflegum Icesave-samningum. Því verður heldur ekki gleymt hverjir reyndu með gegndarlausum hræðsluáróðri, leyndarhyggju og hótunum um stjórnarslit og aðrar alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt efnahagslíf að þvinga fram samþykki Alþingis fyrir ríkisábyrgð á fyrsta og öðrum Icesave-samningnum.

Ég hef ekki gleymt því hverjir það voru sem töluðu gegn undirskriftasöfnun sem átti sér stað úti í bæ, m.a. fyrir forgöngu Indefence-hópsins, og fundu því allt til foráttu að slík hreyfing væri komin af stað. Fólk var hvatt með beinum eða óbeinum hætti til að sitja heima og láta þjóðaratkvæðagreiðsluna sig ekki varða. Það voru ekki sjálfstæðismenn sem tóku þátt í umræðunni með þessum hætti. Það voru hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra og almennt talsmenn ríkisstjórnarflokkanna sem þannig töluðu fyrr á þessu ári. Þannig var það. Þeirra er ábyrgðin á þeim hnút sem Icesave-málið hefur verið í síðan í júní 2009 og þeirra er því miður smánin fyrir að hafa reynt að troða upp á þjóð sína þeim samningum sem þar var um að ræða og fólu í sér stórhættu fyrir efnahag þjóðarinnar fram á við litið. Þessu verður að halda til haga hér, ekki síst þegar við skynjum að nú er að fara af stað sá málflutningur að hér hafi tapast fjárfestingar og miklir efnahagslegir hagsmunir vegna andstöðu stjórnarandstöðunnar við fyrri Icesave-samningana. Ég hygg að þeir sem ábyrgðina bera á fyrri samningagerð í þessu máli ættu frekar að líta í eigin barm því að ef þeir hefðu í upphafi komið í þingið með sanngjarna, ásættanlega lausn í málinu í stað þeirra skelfilegu samninga sem ríkisstjórn Íslands samþykkti óséða í júní 2009 og síðan stjórnarliðarnir undir lok síðasta árs hefði staðan í Icesave-deilunni verið allt önnur frá upphafi. Þannig er það. Því miður geta stjórnarliðar ekki skotið sér undan þessum fyrri gerðum sínum í málinu.

Eins og ég rakti áðan ber að þakka íslensku þjóðinni allan árangur sem náðst hefur í málinu fram til þessa, þann áfanga sem náðist þegar samninganefndin skilaði af sér sinni vinnu. Reyndar er okkur öllum ljóst þó að við horfum á það greinilega hvert með sínum hætti að sú niðurstaða sem hér er til umfjöllunar felur í sér töluvert betri samninga en fjármálaráðherra og ríkisstjórnarflokkarnir fengu samþykkta undir lok síðasta árs. Það er beinlínis skelfilegt til þess að hugsa hvar við værum stödd ef þær fyrirætlanir hefðu gengið eftir.

Frá þeim tímapunkti að samningarnir voru felldir hefur þrotlaus og fagleg vinna nýrrar samninganefndar skilað árangri sem við höfum til umfjöllunar í þinginu og augljóst að hún er okkur á alla kanta mun bærilegri og mun hagfelldari en fyrri samningurinn en undanfarna daga hefur þessi samanburður verið talsvert til umfjöllunar. Hvernig er rétt að bera þennan nýja samning saman við fyrri lausnir í málinu? Hæstv. fjármálaráðherra gerði það fyrir sitt leyti og byggði þar fyrst og fremst á þeim gögnum sem samninganefndin sjálf hefur tekið saman. Það er eitt grundvallaratriði sem menn verða að hafa í huga þegar þær tölur eru skoðaðar, það að þar er borinn saman nýi samningurinn og áætluð heildarskuldbinding sem í honum felst árið 2016 þegar hann verður að fullu upp gerður og svo hins vegar eldri samningurinn miðað við þær breyttu forsendur sem hafa orðið í millitíðinni á sama tímapunkti, en þá átti eftir að standa í greiðslum af þeim samningi í nokkur ár. Ég tel rétt, eðlilegt og sanngjarnt þegar við ræðum um það hvernig staðan hefur breyst frá því að málið kom fyrst inn að skoða einfaldlega hvernig málið horfði við stjórnarflokkunum sjálfum þegar þeir komu með málið inn.

Lítum t.d. á fyrsta frumvarpið sem kom inn í þingið og útreikning fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins á því máli vegna þess að við verðum að setja okkur í spor þeirra sem vildu samninginn þannig samþykktan. Hvernig blasti samningurinn þá við mönnum? Það er til tafla í frumvarpinu sjálfu sem dregur saman að miðað við 75% heimtur úr þrotabúinu, sem var eðlilegt að gera ráð fyrir þá enda hefði annað verið of mikil bjartsýni á þeim tímapunkti, um mitt ár 2009, og samkvæmt þeim samningi hefðu heildargreiðslur með vöxtum numið 490 milljörðum kr. Þetta eru samningarnir sem þessi ríkisstjórn lagði í upphafi fyrir þingið.

Næst þegar ríkisstjórnin þurfti að koma með samninga eftir að Bretar og Hollendingar höfðu hafnað að taka tillit til fyrirvara Alþingis sagði í frumvarpi ríkisstjórnarinnar að skuld samkvæmt samningunum væri áætluð árið 2016 351 milljarður kr. miðað við sama endurheimtuhlutfall, 75%. Þá átti eftir að taka tillit til vaxta sem hefðu farið með þessa tölu yfir 400 milljarða kr. Hér er ég búinn að nefna tvær tölur sem þessi ríkisstjórn hefur áður lagt fyrir þingið. Þetta eru ekki mínir útreikningar, ekki útreikningar einhverra aðila úti í bæ heldur útreikningar fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins sem draga fram þá staðreynd að heildarskuldbinding samkvæmt fyrsta og öðru upplagi ríkisstjórnarinnar í málinu hafi verið u.þ.b. 10 sinnum stærri en það sem nú er verið að leggja fyrir þingið. Það er auðvitað von að þeir sem stóðu að því að leggja slíkt mál fyrir þingið, börðust fyrir því með kjafti og klóm, töldu þjóðinni trú um að ekki væri nein önnur skárri eða bærilegri lausn í boði og við hefðum engan annan kost en að fallast á þessar kröfur, þessa lausn málsins, séu dálítið framlágir í þinginu í dag og margir þeirra fjarverandi. Það var ekki við öðru að búast.

Ég verð að viðurkenna að það er dálítið erfitt að fjalla um þessar upphæðir, ekki síst í kjölfar fjárlagaumræðunnar sem hér fór fram í dag þar sem einstakir stjórnarliðar treystu sér ekki til að vera með í afgreiðslu fjárlaga vegna þess að það vantaði einn milljarð hér og annan milljarð þar, einn og tvo hér og þrjá þarna. Þeir eru í stjórnarmeirihluta sem kynnti samning fyrir einu ári sem hefði getað falið í sér skuldbindingar upp á u.þ.b. 400 milljarða kr. umfram það sem við erum núna að fara að ræða. Þess vegna hljóta hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra að hafa íhugað stöðu sína eftir að þessi niðurstaða kom fram. Ríkisstjórn sem er ber að mistökum á borð við þessi stendur að sjálfsögðu á brauðfótum og ég skil í sjálfu sér beiðni til okkar í stjórnarandstöðunni um að efna til málefnalegrar umræðu en það er fullkomlega málefnalegt og eðlilegt að draga fram muninn á því sem núna liggur fyrir eftir að samstaða tókst meðal stjórnmálaflokka í þinginu um að standa sameiginlega gegn kröfum Breta og Hollendinga og þeim samningum sem ríkisstjórnin leiddi fram ein og óstudd á sínum tíma. Það er fullkomlega málefnalegt og eðlilegt.

Ég vil segja um efnisatriði þeirra samninga sem liggja frammi að eins og hæstv. fjármálaráðherra rakti eru einkum þrír megináhættuþættir í málinu. Sá fyrsti er gengisþróun íslensku krónunnar og annarra gjaldmiðla eins og fram kemur í frumvarpinu sjálfu. Þetta er auðvitað þó nokkuð mikil áhætta. Hún getur sveiflað heildarskuldbindingunni um nokkra milljarða og hana verður að gaumgæfa í störfum fjárlaganefndar.

Í öðru lagi er um að ræða endurheimtuáhættu vegna eignasafns þrotabúsins. Þarna er líka um áhættu að ræða en þessir tveir áhættuþættir hafa breyst talsvert á undanförnum mánuðum og það er ekki lengra síðan en nokkrir dagar að fréttir bárust af því að mögulegt væri að selja eina verðmætustu eign þrotabúsins vegna þess að tilboð hefði komið í hana. Sem betur fer var það langt umfram það verðmæti sem skilanefndin hafði gert ráð fyrir, en hvaða tryggingu höfðum við fyrir því á Alþingi að tilboðið yrði ekki langt undir verðmætinu sem hefði getað gert vandann enn meiri? Síðan berast þau tíðindi frá ESA í þessari viku að þeir telji neyðarlögin standast þau atriði sem þau tóku til skoðunar, þ.e. að veita innstæðum forgang að eignum þrotabúanna. Það eru auðvitað mjög jákvæð tíðindi og draga úr óvissunni í þessu máli. En þetta eru tveir atburðir bara á síðustu dögum sem sýna að málið er á slíkri hreyfingu og hagsmunirnir sem sveiflast til nánast frá degi til dags eru slíkir að þingið er sett í afar vandasama stöðu við að festa niður skilmála á grundvallarsamkomulagi milli ríkja í jafnstóru máli og þetta mál er.

Þriðja atriðið sem að sjálfsögðu verður að gaumgæfa mjög nákvæmlega er þau lagalegu úrlausnarefni sem enn hefur ekki fengist lausn á. Það mun vonandi gerast á árinu 2011, allt sem mestu máli skiptir, t.d. um það hvort Ragnars Halls-aðferðin, sem ég ætla að leyfa mér að kalla svo, verði notuð við uppgjör á búinu þannig að greitt verði upp í lágmarkstrygginguna á undan öðrum innstæðum af eignum þrotabúsins og eins hvort það verði talið fela í sér mismunun að hafa komið íslenskum innstæðum í skjól með endurreisn íslenska bankakerfisins en ekki innstæðum í erlendum útibúum. Þetta sýnir fram á að það eru ýmsir þættir sem enn þurfa að koma til skoðunar. Ég lofa því, nákvæmlega eins og ég gerði við atkvæðagreiðslu þessa máls, að hagsmunir íslensku þjóðarinnar munu leiða okkur til niðurstöðu. Heildarmat á hagsmunum þjóðarinnar mun grundvalla afstöðu Sjálfstæðisflokksins til þessa máls (Forseti hringir.) eftir að vinnu þingsins við skoðun þess verður lokið. Það er ekki fyrr en búið er að fara ofan í saumana á þessu máli, öllum þessum áhættuþáttum, sem hægt er að mynda sér endanlega skoðun á þessu máli. Og það er svo sannarlega ekkert sjálfgefið í því.