139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[15:19]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það sem æpir auðvitað á alla Íslendinga er það hvernig ríkisstjórnin ætlar að axla ábyrgð sína á þessu máli. (BirgJ: Heyr, heyr.) Hvernig ætlar hæstv. utanríkisráðherra að axla sína ábyrgð á því að hafa barist svo hatrammlega fyrir lausn málsins í þeim búningi sem þjóðin felldi með 98% atkvæða? Það er ábyrgðin sem allir spyrja sig um, ekki þessi sem hæstv. ráðherra (Gripið fram í.) vill gera hér að umtalsefni. (Gripið fram í.) Ég vil taka það fram vegna þess sem segir í greinargerðinni með þessu frumvarpi að á fundinum úti í Haag komu fram kröfur af hálfu Breta og Hollendinga og þar er þess ekki getið að ég tók alveg skýrt fram á þeim fundi við bankamálaráðherra Breta og fjármálaráðherra Hollendinga að sæktust menn eftir samstöðu á íslenska þinginu um að endurgreiða Bretum og Hollendingum allan útlagðan kostnað og fjármagnskostnað þyrftu þeir að bíða býsna lengi vegna þess að það mundi aldrei skapast þverpólitísk samstaða um slíkt. Hér er hins vegar kominn fram samningur þar sem Bretar og Hollendingar taka á sig vaxtakostnaðinn. Það liggur fyrir að þeir (Forseti hringir.) kosta miklu til og það er vel. Ég held að það færi vel á því að hæstv. utanríkisráðherra ætti núna samtal við utanríkisráðherra annars staðar á Norðurlöndunum og útskýrði fyrir þeim (Forseti hringir.) að Hollendingar væru að tala fyrir því heima hjá sér að samningur sem fæli í sér u.þ.b. bil 350 milljörðum kr. lægri heildarskuldbindingar (Forseti hringir.) en eldri samningur væri þannig vaxinn að þeir fengju allt sitt til baka.