139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[15:42]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Það er fullt tilefni til að fagna því frumvarpi sem hér er til umræðu og þeirri sameiginlegu samningsniðurstöðu sem liggur því til grundvallar. Icesave-deilan hefur allt of lengi staðið endurreisninni fyrir þrifum og verið aflvaki harðra deilna og átaka í samfélaginu, bæði innan þings sem utan, og það er orðið löngu tímabært að sátt náist í þessu erfiða máli.

Sú niðurstaða sem samninganefnd stjórnar og stjórnarandstöðu undir forustu Lees Buchheits náði í viðræðunum við Breta og Hollendinga gefur okkur tilefni til að ætla að nú hilli undir slíka samstöðu um afgreiðslu málsins enda hafa stjórn og stjórnarandstaða verið samferða í gegnum málið nánast allt þetta ár. Það er auðvitað erfitt að sætta sig við að ábyrgðarlaus hegðun stjórnenda einkabanka geti leitt til þess að ríkissjóður og skattborgarar þessa lands þurfi að taka á sig byrðar eins og þær sem hér um ræðir en í þessu máli hafa aldrei verið annað en vondir kostir í boði.

Verkefni okkar alþingismanna og ráðherra í þeim ríkisstjórnum sem að málinu hafa komið hefur allt frá samþykkt Alþingis um að samningaleiðin yrði farin verið að verja skásta kostinn og tryggja sem best hagsmuni Íslands í stöðunni. Sem betur fer hefur þróun mála verið með þeim hætti bæði hér heima og erlendis að himinn og haf eru á milli þess sem fyrst var í boði þegar farið var að ræða þetta mál síðari hluta árs 2008, en þá árituðu fjármálaráðherrar Hollands og Íslands minnisblað og gert var ráð fyrir 6,7% vöxtum og hraðari endurgreiðslu, en þessu er nú náð með samstilltu átaki allra flokka á Alþingi.

Sá samningur sem nú liggur fyrir um lok Icesave-málsins er líka hagstæðari en sá sem síðast var gerður og enn hagstæðari en hinir tveir sem á undan komu. Í þessu efni er þó óþarft að kasta fram að mörg hundruð milljarða munur sé á milli þess og fyrri samnings. Ég hvet menn til að gæta hófs í þessum efnum og halda sig við staðreyndir. Samninganefndin sjálf sem vel að merkja er skipuð fulltrúum stjórnar og stjórnarandstöðu undir forustu Lees Buchheits telur að munurinn á þessum tveimur síðustu samningum sé ríflega 100 milljarðar kr. og er því lýst í frumvarpinu. Það kemur fram að kostnaður ríkissjóðs verði um 50 milljarðar kr. af nýja samningnum en hefði orðið um 160 milljarðar kr. samkvæmt þeim sem var felldur í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þá á reyndar eftir að núvirða upphæðirnar sem eitthvað mundi draga úr muninum en þetta eru umtalsverðir fjármunir og full ástæða til að gleðjast yfir þeim árangri. Á samninganefndin hrós skilið fyrir góða frammistöðu.

Eins og formaður samninganefndarinnar hefur bent á hefur margt lagst með Íslandi í þessari síðustu lotu sem óvissa var um áður. Margt af því hefði einnig komið okkur til góða á grundvelli síðasta samnings. Hann nefnir mun betri innheimtur úr búi Landsbankans, gengisþróun sem hefur verið Íslandi í hag, hagfellda þróun á lánamörkuðum og ekki síst mun betri efnahagslega stöðu Íslands. Vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar hefur t.d. tekist að rjúfa umsátur Breta og Hollendinga um endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands hjá AGS og með þeim hætti tókst að byggja upp gjaldeyrisforðann, lækka skuldatryggingarálagið og vinna í samræmi við efnahagsáætlunina þrátt fyrir að deilan væri óleyst.

Í samræmi við efnahagsáætlunina hefur ríkisstjórninni einnig tekist að bæta rekstrar- og skuldastöðu ríkissjóðs með þeim hætti að hægt væri að hefja greiðslur samkvæmt samkomulaginu fyrr en áður var talið ráðlegt. Allt þetta hjálpaði til við að ná hagfelldari niðurstöðu og það svigrúm hefur samninganefndin nýtt afar vel og af skynsemi. Með þetta eigum við að vera ánægð þótt sannarlega hafi tafir á lausn málsins einnig kostað sitt.

Það er einnig mikilvægt að halda því til haga á þessum vettvangi, ekki síst vegna harðrar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á okkur sem höfum ávallt barist fyrir samningaleiðinni í þessu máli og studdum síðasta samning hér í þinginu, að strax í vor skömmu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu lá á borðinu tilboð frá Bretum og Hollendingum sem var mun betri samningur en sá sem kjósa átti um. Þetta hefur komið fram í svari mínu við fyrirspurn á Alþingi og liggur fyrir í skjölum þingsins.

Þar kemur m.a. fram að í sameiginlegu bréfi fjármálaráðherra Hollands, Wouters Bos, og Lord Myners, ráðherra í breska fjármálaráðuneytinu, til fjármálaráðherra frá 19. febrúar sl. er sett fram tillaga um breytingar frá fyrra samkomulagi við íslensk stjórnvöld er feli í sér í fyrsta lagi að í stað 5,55% fastra vaxta verði vextir breytilegir eins og kveðið er á um í lánasamningi Norðurlandanna og íslenska ríkisins og Seðlabanka Íslands, í öðru lagi að við bætist sama vaxtaálag og samið var um í þeim samningum og í þriðja lagi að felldir verði niður vextir af lánunum fyrir árin 2009 og 2010 og að öðru leyti yrði efni fyrra samkomulags óbreytt. Það liggur því fyrir að þá lá á borðinu tilboð um að vextir af lánum yrðu felldir niður á árunum 2009 og 2010 þannig að það yrði vaxtafrelsi í tvö ár. Áætlaðir uppsafnaðir vextir á árunum 2009 og 2010 voru um 70 milljarðar kr. sem sýnir ávinninginn af þessu tilboði miðað við samninga sem áður höfðu verið gerðir ef þetta atriði eitt er tiltekið. Það sýnir ljóslega að þessi drög sem lágu fyrir voru hagstæðari en þeir samningar sem áður höfðu verið gerðir. Þann samanburð ber einnig að hafa í huga.

Virðulegi forseti. Það sem skiptir okkur mestu máli nú er að afgreiða málið í sem mestri sátt og halda endurreisninni áfram. Að mati formanns samninganefndarinnar verður ekki lengra náð við samningaborðið enda sé staðan sú að verði kjör Íslands betri fari Bretar og Hollendingar að greiða með fjármögnun sinni. Valið standi því á milli þessa samnings eða samningsleiðarinnar yfir höfuð og þess að málið fari fyrir dóm þar sem mikil óvissa yrði um afdrif íslenskra hagsmuna. Ég tók eftir því að það var haft eftir Lee Buchheit í blöðunum að sú leið gæti haft skelfilegar afleiðingar að mati hans. Ég tel því mikilvægast að alþingismenn vinni markvisst að því að ljúka umfjöllun um þetta mikilvæga mál svo fljótt sem kostur er. Vissulega þurfa menn að vanda sig við yfirferð yfir málið en ég treysti samninganefndinni sem skipuð var fulltrúum allra flokka til að vinna með þinginu þannig að málinu geti lokið sem fyrst.

Ég tel að við getum vel við unað ef okkur lánast að ljúka Icesave-málinu með þeim hætti sem okkar sameiginlega samninganefnd, samninganefnd allra flokka á Alþingi, landaði í viðræðum við Breta og Hollendinga í samræmi við það frumvarp sem hér er til umræðu. Stórum þröskuldi væri þar með rutt úr vegi endurreisnarinnar og auðveldara yrði í framhaldinu að aflétta gjaldeyrishöftunum, afla erlendrar fjárfestingar og tengja Ísland því alþjóðlega fjármálaumhverfi sem við viljum vera fullgildir aðilar að. Þannig tel ég að við tryggjum hagsmuni þjóðarinnar best.