139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[17:25]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Við ræðum enn og aftur frumvarp sem er eiginlega komið inn í þriðja sinn, um heimildir handa fjármálaráðherra til að staðfesta samninga um Icesave. Þeir eru í raun ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins á kostnaði af greiðslu lágmarkstrygginga til innstæðueigenda þar í löndum af svokölluðum Icesave-reikningum.

Ég ætla ekki að dvelja í fortíðinni og rifja upp alla sögu málsins. Ég ætla að einbeita mér að því sem mér finnst skipta mestu máli núna og hvað við verðum að hafa að leiðarljósi við að reyna að leysa þetta mál eða ganga frá því með viðunandi hætti fyrir þjóðina.

Það sem mér finnst að við verðum að hafa að leiðarljósi er krafa um réttlæti, að réttlætiskrafan verði höfð að leiðarljósi. Hér er um einkaskuldir að ræða, skuldir einkafyrirtækis, og þær eiga ekki undir neinum kringumstæðum að lenda á almenningi eða skattgreiðendum. Fjármálafyrirtækin eða fjármálageirinn verður að bera þessa skuld. Ég hlusta eiginlega ekki á þau rök að þetta séu einhverjar nýjar kennitölur og aðrir aðilar. Þetta er sami heimur. Víða í löndum eru tryggingarsjóðir þannig að í þá er greitt eftir á. Ef eitt fjármálafyrirtæki fer á hausinn sjá önnur fjármálafyrirtæki á markaði til þess að innstæðueigendur fái a.m.k. greitt upp að lágmarkskröfu. Önnur fjármálafyrirtæki sjá um að grafa líkið, ef svo má segja.

Ég held að hægt sé að láta Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta, sem á í raun og veru að greiða þessa skuld, greiða hana með iðgjöldum sem fjármálafyrirtækin sem taka við innstæðum borga í sjóðinn.

Fyrir þinginu liggur annað frumvarp þar sem gert er ráð fyrir endurreisn tryggingarinnstæðusjóðsins og gengur út á að skipta honum í A- og B-deild. B-deild væri þá gamla deildin en A-deildin væri ný deild sem mundi verja innstæðueigendur nú og í framtíðinni ef fjármálafyrirtæki mundu falla. Samkvæmt þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að hækka iðgjöldin verulega. Þau eru núna 0,15% en lagt er til að hækka þau í 1%.

Ég mundi vilja láta lungann af þeirri upphæð sem safnast, en samkvæmt umsögn Bankasýslu ríkisins eru það 20–25 milljarðar á ári á næstu tveimur árum, fara í að greiða Icesave-skuldina þangað til hún er uppgreidd. Bankarnir hafa skilað miklum hagnaði og sá hagnaður rennur að mestu til kröfuhafa sem margir hverjir eru í útlöndum. Enginn spyr þá í raun og veru hvort þeir vilji greiða 1% á ári í tryggingarinnstæðusjóðinn. Þeir verða að gera það samkvæmt frumvarpinu. Ég vil skora á fjárlaganefnd og viðskiptanefnd að reyna að vinna þetta saman og skoða þetta vel, sjá hvort hægt er að finna á þessu flöt. Þeirri hugmynd er hér með komið á framfæri.