139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[17:57]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og endranær spyr hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson glöggra spurninga. Hann hefur greinilega haft góða kennara. Að öllu gamni slepptu er þetta hárrétt athugað með forgangskröfurnar, fleiri en Íslendingar högnuðust á því að innstæður væru settar í forgang. Með neyðarlögunum urðu Bretar hliðsettir með þá ábyrgð sem þeir báru á innstæðureikningunum sem var út af þessum svokölluðu „top up“ ákvæðum sem gætu numið allt að 400–500 milljörðum kr. Ef neyðarlögunum yrði rift og það færi í almennar kröfur mundu þeir tapa gríðarlegum fjárhæðum þannig að hagsmunir Breta og Hollendinga eru hvorki að kippa í burtu forgangi innstæðna né þessu svokallaða „pari passu“-ákvæði sem er í samningunum.

Það er alveg rétt að ef efnahagsástand í Evrópu verður mjög slæmt, þá sérstaklega í Bretlandi, er hætta á að ekki verði jafngóðar innheimtur á lánasöfnum skilanefndar Landsbankans og að það mundi lenda meira á ríkinu. Það er að mestu einangrað við England. Sem betur fer er England ekki í hinu evrópska peningakerfi þannig að hættan sem steðjar að Bretlandi er kannski ekki jafnmikil og steðjar núna að öðrum Evrópulöndum út af þeim vandræðum þar.