139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

rannsókn á Íbúðalánasjóði.

22. mál
[21:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta allshn. (Róbert Marshall) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta allsherjarnefndar um tillögu til þingsályktunar um rannsókn á Íbúðalánasjóði.

Nefndin hefur fjallað um þetta mál og fengið umsagnir frá Mannréttindaskrifstofu Íslands, Ríkisendurskoðun, ríkislögreglustjóra, ríkissaksóknara, Seðlabanka Íslands og Viðskiptaráði Íslands.

Með þessari tillögu er lagt til að fram fari sjálfstæð og óháð rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum sjóðsins sem hrint var í framkvæmd á árinu 2004. Í kjölfar þess fari fram heildarendurskoðun á stefnu og starfsemi Íbúðalánasjóðs.

Á fundum nefndarinnar var nokkuð fjallað um áhrif af þessum breytingum á stefnu og starfsemi sjóðsins og á fasteignamarkaðinn í heild sinni og innkomu bankanna á húsnæðislánamarkaðinn árið 2004 sem hafði einnig veruleg áhrif, m.a. á skuldsetningu heimila og sveitarfélaga en einnig á stöðu Íbúðalánasjóðs. Meiri hlutinn telur því brýnt að samhliða rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs verði þessi innkoma bankanna á markaðinn og áhrif hennar sérstaklega rannsökuð.

Þá telur meiri hlutinn nauðsynlegt að einnig verði lagt mat á það hversu sjóðnum hefur tekist að sinna lögbundnu hlutverki sínu á þessu tímabili. Leggur meiri hlutinn enn fremur áherslu á að um leið og stefna og starfsemi Íbúðalánasjóðs verður rannsökuð verði mótuð stefna um fjármögnun húsnæðislánakerfisins í heild sinni.

Meiri hlutinn leggur áherslu á að lagalegur rammi um rannsóknina taki mið af ákvæðum frumvarps til laga um rannsóknarnefndir sem forsætisnefnd Alþingis hefur lagt fram á Alþingi.

Við þetta má bæta að lagafrumvarpið hefur verið sent til umsagnar og er umsagnarfresturinn til miðs næsta mánaðar ef mér skjöplast ekki þannig að hafin verður umfjöllun um þá tillögu strax að loknu þingfundarhléi í janúar

Umfjöllun nefndarinnar um málið tengist beiðni Íbúðalánasjóðs um 33 milljarða kr. viðbótarfjármagn í frumvarpi til fjáraukalaga.

Meiri hluti allsherjarnefndar leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:

1. Tillögugreinin orðist svo:

Alþingi ályktar að á vegum þess fari fram sjálfstæð og óháð rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs. Rannsökuð verði starfsemi sjóðsins frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum hans sem hrint var í framkvæmd á árinu 2004 og til ársloka 2010. Markmið rannsóknarinnar verði í fyrsta lagi að meta áhrifin af þessum breytingum, stefnu sjóðsins og einstökum ákvörðunum á þessum tíma á fjárhag sjóðsins og fasteignamarkaðinn í heild sinni, í öðru lagi að meta áhrifin af starfsemi Íbúðalánasjóðs á stjórn efnahagsmála og í þriðja lagi að leggja mat á hversu vel sjóðnum hefur tekist að sinna lögbundnu hlutverki sínu á þessu tímabili. Í kjölfar rannsóknarinnar fari fram heildarendurskoðun á stefnu og starfsemi Íbúðalánasjóðs og fjármögnun húsnæðislánakerfisins á Íslandi.

Forsætisnefnd Alþingis verði falið að sjá um að rannsóknin fari fram í samræmi við ákvæði frumvarps til laga um rannsóknarnefndir sem hún hefur lagt fram. Forseti Alþingis skipi þriggja manna nefnd til að vinna rannsóknina og skila um hana skýrslu til Alþingis innan sex mánaða frá skipun nefndarinnar. Til rannsóknarinnar verði fengnir sjálfstæðir aðilar sem hafi sambærilegar heimildir til skýrslutöku og gagnaöflunar og rannsóknarnefnd Alþingis hafði. Ef nauðsyn krefur setji Alþingi lög til að tryggja aðgengi rannsóknarnefndar að nauðsynlegum gögnum og upplýsingum.

Í rannsókninni verði m.a. skoðuð ítarlega eftirfarandi atriði auk annarra atriða sem þarfnast úttektar:

1. Breytingarnar á sjóðnum 2004, m.a. undirbúningur þeirra og áhrif á fasteignamarkað og efnahagsmál.

2. Framganga banka á lánamarkaði til fasteignakaupa og viðbrögð Íbúðalánasjóðs við aukinni samkeppni banka um íbúðalán, m.a. vegna 100% lána bankanna og uppgreiðslna á lánum sjóðsins, t.d. hækkað lánshlutfall úr 80% í 90% og hækkuð hámarkslán.

3. Hvernig sjóðurinn sinnti verkefnum sínum, sérstaklega skv. 9. tölul. 9. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998.

4. Viðbrögð sjóðsins við vaxandi þenslu á fasteignamarkaði.

5. Skuldabréfaskipti úr húsbréfum í húsnæðisbréf, með því að binda uppgreiðslumöguleika sjóðsins.

6. Samskipti Íbúðalánasjóðs við Seðlabanka Íslands vegna lausafjár sjóðsins.

7. Kaup Íbúðalánasjóðs á greiðsluflæði lána frá bönkum og sparisjóðum með mun hærri hámarkslánsfjárhæð en reglugerð félagsmálaráðherra gerði ráð fyrir.

8. Tryggingar fyrir lánum sjóðsins þar sem lán til banka og sparisjóða voru ekki með veði.

9. Lánveitingar til byggingaverktaka, jafnvel án bankaábyrgða á ákveðnu tímabili.

10. Reglugerð félagsmálaráðherra nr. 896/2005 og hvernig hún samræmdist kröfum um áhættustýringu.

11. Viðskipti Íbúðalánasjóðs við verðbréfasjóði með verulegu tapi.

12. Helstu ástæður fyrir taprekstri sjóðsins frá 2008 og fyrirsjáanlegar afskriftir sjóðsins af ráðstöfunum sem taldar eru hér að framan.

13. Eftirlit Alþingis, ráðuneytis og stofnana á borð við Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands með starfsemi sjóðsins. Var það fullnægjandi?

14. Annað sem rannsóknarnefnd kann að komast að við rannsókn sína og telur ástæðu til að upplýsa Alþingi um.

Heiti tillögunnar orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um rannsókn á Íbúðalánasjóði o.fl.

Þór Saari hv. þm., sem er áheyrnarfulltrúi í allsherjarnefnd, er samþykkur þessu áliti.

Auk þess sem hér stendur rita undir það hv. þingmenn Atli Gíslason, Valgerður Bjarnadóttir, Sigurður Kári Kristjánsson, með fyrirvara, Þráinn Bertelsson, Birgir Ármannsson, með fyrirvara, og að lokum hv. þm. Mörður Árnason.

Þetta er gríðarlega yfirgripsmikil rannsókn sem hér er efnt til en fullt tilefni til og leggur nefndin til sem fyrr segir að hún verði samþykkt.