139. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2010.

rannsókn á Íbúðalánasjóði.

22. mál
[22:33]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Varðandi spurningar hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar held ég að rétt sé að taka fram að ég er sammála honum varðandi leiguíbúðirnar. Ég held að það þurfi að skoða alla lánaflokka Íbúðalánasjóðs og mér finnst það í raun felast í þessari tillögu þótt það sé ekki sagt berum orðum.

Ég ætla að endurtaka svar sem ég gaf hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur, þessi tillaga sprettur upp úr ályktun rannsóknarnefndar Alþingis um breytingar í fjármögnunarkerfi sjóðsins. Í þessari tillögu biðjum við m.a. um ástæðurnar fyrir því að svo er komið fyrir sjóðnum í víðu samhengi og ef nefndin metur það sem svo að það nái til Byggingarsjóðs verkamanna má benda á að í 14. lið breytingartillögunnar segir að rannsaka verði, með leyfi forseta:

„Annað sem rannsóknarnefnd kann að komast að við rannsókn sína og telur ástæðu til að upplýsa Alþingi um.“

Ég tel það alveg rúmast innan þess en ég er ekki útvörður þess að dylja sögu Byggingarsjóðs verkamanna. Ég tel að það uppgjör liggi alveg fyrir og þurfi ekki sérstakrar rannsóknar við. Það sem við erum að rannsaka er hvernig sjóðurinn sinnti lögbundnu hlutverki sínu eftir að hafa breytt um fjármögnunarleiðir og hvers vegna þær leiðir voru valdar þó að það væri yfirlýst mat eftirlitsstofnana og sérfræðinga að þær kynnu með einhverju móti að vinna gegn hagstjórnarstefnu ríkisvaldsins og peningamálastjórninni. Mér finnst það liggja nokkuð ljóst fyrir.