139. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2010.
frestun á fundum Alþingis.
389. mál
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar en tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 17. desember 2010 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 17. janúar 2011.“
Tillagan skýrir sig sjálf.