139. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2010.

fundarstjórn.

[14:55]
Horfa

Forseti (Siv Friðleifsdóttir):

Forseti mun freista þess enn á ný að ítreka að ekki má nýta þennan lið undir annað en umræður um fundarstjórn forseta, ekki um önnur mál. Það eru aðrir liðir sem eru til þess fallnir. Forseti telur að hv. þingmenn þekki þetta allvel en gefur samt orðið hv. 12. þm. Suðvesturkjördæmis, Jóni Gunnarssyni, og treystir því að hv. þingmaður muni tala um fundarstjórn forseta.