139. löggjafarþing — 52. fundur,  17. des. 2010.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

200. mál
[16:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og skattn. (Helgi Hjörvar) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég geri ekki athugasemd við að stjórnarandstaðan á þingi sinni því hlutverki að benda á það sem hún telur að geti aflaga farið eða líti illa út. En ég þakka hv. þingmanni fyrir að staðfesta að á yfirstandandi ári eru líka margir hlutir sem hafa gengið betur og í heild hafa áformin um tekjuöflun gengið eftir. Raunar þegar tekið er tillit til Avens-samningsins er afkoma ríkissjóðs umtalsvert betri en við ráðgerðum fyrir yfirstandandi ár. Ég held að við eigum öll að fagna því og vona að það hjálpi okkur til að byggja hér upp fyrir næsta ár.

Hv. þingmaður talar um helför. Ég held að það sé nú bara ein helför sem hér hefur verið farin í efnahagsmálum. Ég held ég hafi ekki frekar en Jóhanna Sigurðardóttir eða aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar stýrt efnahagsmálum þeirrar helfarar.

Það kemur mér á óvart að hv. þingmaður skuli vilja líta til Írlands og Grikklands sem sérstakra fyrirmynda í efnahagsmálum. Ég hélt einmitt að við ætluðum að læra af reynslunni. Ég held raunar að við höfum gert það með setningu neyðarlaganna og ég held að við þurfum líka að gera það í skattamálum. Vegna þess að sú klisja að eilíf undirboð á skattamarkaði sé lykillinn að efnahagslegri velferð reyndist í hruninu alls kostar röng. Hver eru þau ríki sem féllu hvert á fætur öðru þegar stormarnir byrjuðu að geysa? Það voru lágskattaríkin. Það voru Eystrasaltsskattaparadísirnar, Ungverjaland, Írland, Grikkland og þannig koll af kolli. Þau ríki sem standa og hafa trausta innviði eru þau lönd sem innheimta hóflega skatta af atvinnulífi og kappkosta auðvitað að vera samkeppnisfær og hvetja til fjárfestinga með margvíslegum aðgerðum en tryggja engu að síður traustar tekjur í ríkissjóð og traustan grunn fyrir efnahagslífið að standa á.