ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal, sem er einmitt nefndarmaður í efnahags- og skattanefnd, fyrir hans ágætu ræðu. Hvað varðar ýmis þau andmæli sem auðvitað komu fram á fundum nefndarinnar er hv. þingmanni vel kunnugt að ýmsir annmarkar geta verið á tekjuöflunaraðgerðum ríkissjóðs út frá sjónarhóli einstakra hópa, enda er ekki verið að ráðast í tekjuöflunaraðgerðirnar að gamni sínu heldur vegna þess að sú ríkisstjórn sem nú situr kemur að ríkisfjármálunum í rjúkandi rúst. Hún verður þess vegna af nauðsyn að ráðast í aðgerðir sem vissulega hafa jákvæð áhrif fyrir afkomu ríkissjóðs og heildarhagsmuni þjóðarinnar en hafa auðvitað líka neikvæðar hliðar fyrir ýmsa hópa.
Ég vil segja um auðlegðarskattinn að ég legg áherslu á að hann er tímabundin aðgerð og ég held að það sé býsna góður friður um það að þeir sem best standa í samfélaginu efnalega eftir þetta mikla efnahagshrun leggi tímabundið sérstaklega af mörkum til þess að hjálpa okkur í gegnum þennan erfiðasta kafla í efnahagsuppbyggingunni.
Ég vil síðan taka undir með hv. þingmanni um krónutöluhækkanirnar að það er auðvitað þannig að þær eru 4% og umfram verðlagsforsendurnar eins og þær eru nú metnar fyrir næsta ár um 1,7%. Þær verðlagsforsendur eru auðvitað óvissar en ég tel óhjákvæmilegt þegar menn meta hvort að ári sé þörf á verðlagsuppfærslum á þessum krónutölugjöldum að þeir verði að horfa til þess, ef hækkanirnar nú reynast vera umfram verðlagsþróun á næsta ári, að þá komi það til góða þegar metin verði hækkunarþörfin á þessum gjöldum að ári, því að það þýðir ekki að (Forseti hringir.) hækka ítrekað með vísan til verðlags umfram raunverulega verðlagsþróun.