139. löggjafarþing — 54. fundur,  18. des. 2010.

virðisaukaskattur.

208. mál
[11:06]
Horfa

iðnaðarráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég styð þessa breytingartillögu en ég tel að í kjölfar lagabreytinganna sem munu eiga sér stað sé mikilvægt að stjórnvöld leiti samstarfs við skattyfirvöld um leiðir til að tryggja skattalega meðferð búnaðar sem erlendir viðskiptavinir íslenskra gagnavera kjósa að kaupa af íslenskum birgjum. Það er mikilvægt að íslenskir birgjar tölvubúnaðar búi ekki við skerta samkeppnisstöðu þegar erlendir aðilar velja netþjóna og búnað til að setja upp í íslenskum gagnaverum. Það tel ég, virðulegi forseti, að við verðum að skoða í framhaldinu.