139. löggjafarþing — 54. fundur,  18. des. 2010.

vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

197. mál
[11:21]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég óska hæstv. fjármálaráðherra hjartanlega til hamingju með frumvarpið vegna þess að hér er verið að stíga mjög jákvætt skref, hér er verið að kerfisbreyta og miða við kolefnislosun frekar en þyngd bifreiðanna. Stórmerkilegt mál, bæði vörugjaldamegin og bifreiðagjaldamegin.

Við bregðumst við þróun og það er rangt að verið sé að auka skattlagningu. Það er miklu betra að miða skattlagninguna við mengunina frekar en þyngd bifreiðarinnar þannig að hér er um réttlætismál að ræða. Hér er verið að koma til móts við bílaleigurnar í landinu, lífæð landsbyggðarinnar í ferðaþjónustu. Gleymum því ekki að hvergi í Evrópu borga bílaeigendur vörugjöld af þeim bílum sem þeir nota. Hér er verið að koma til móts við þau sjónarmið. (Gripið fram í.) Hér erum við að bæta stöðu bílgreinarinnar umtalsvert og við munum sjá aukinn innflutning á bílum á næsta ári vegna þessa frumvarps. (BJJ: Hvað með landsbyggðina?)