139. löggjafarþing — 54. fundur,  18. des. 2010.

Stjórnarráð Íslands.

302. mál
[11:54]
Horfa

Róbert Marshall (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða tæknilegt mál sem lýtur að sameiningu ráðuneyta, breytingu á heitum þeirra, þrjár breytingartillögur sem fyrst og fremst eru tæknilegs eðlis og hafa ekki í för með sér neinar efnislegar breytingar. Þær snúa að orðalagi sem ég legg til að verði samþykkt hér.