139. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2010.

vextir og verðtrygging o.fl.

206. mál
[14:07]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er ljóst að þessi lög eiga að taka á lífsnauðsynlegu máli, þ.e. það á reyna að sortera úr þeim vandamálum sem fylgdu gengislánadómnum. En við sjálfstæðismenn getum ekki staðið að þessu máli vegna þess að frumvarpið, sem verður eflaust að lögum innan skamms, er það illa úr garði gert, það er ekki nógu vel unnið. Við stungum upp á því að málinu yrði frestað eitthvað örlítið, kannski um mánuð eða eitthvað svoleiðis, og við mundum vinna að því í góðri samvinnu með stjórnarflokkunum. En stjórnarflokkarnir hafa kosið að koma þessu máli í gegn. Við munum ekki þvælast fyrir þar þannig að við munum sitja hjá.