kjarasamningar og endurskoðun fiskveiðistefnu.
Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að það sem snýr að ríkisstjórninni í þessum kjarasamningum eru þónokkrir hlutir sem bæði SA og ASÍ hafa kynnt fyrir ríkisstjórninni. Við munum auðvitað fyrst og fremst horfa á þau atriði sem þau samtök leggja sameiginlega fram. ASÍ hefur ekki sett það fram að fiskveiðistjórnarmálið og lyktir þess ráði einhverjum úrslitum að því er kjarasamninga varðar. Mér finnst ég frekar hafa orðið vör við að ASÍ mótmæli því að því sé stillt þannig upp, eins og SA hefur gert, að það eigi að ráða úrslitum í þessum máli. Það er auðvitað fráleitt.
Hv. þingmaður talar um mikinn fjárfestingarvanda af hálfu sjávarútvegsins og að ráðast þurfi í það verkefni og eyða allri óvissu. Ég er alveg sammála um að við eigum að eyða allri óvissu í þessu máli sem allra fyrst og vonandi getur orðið sem víðtækust samstaða og sátt um þetta stóra mál. En það skyldi þó ekki alveg eins vera skuldavandinn sem hrjáir sjávarútveginn og það að (Forseti hringir.) hann bíði eftir að fara í fjárfestingar? [Frammíköll í þingsal.]