139. löggjafarþing — 60. fundur,  18. jan. 2011.

störf þingsins.

[14:21]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Mig langar til að vekja athygli á svari sem ég fékk frá hæstv. velferðarráðherra í gær um ástandið á vinnumarkaðnum hér á landi. Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar voru að meðaltali 12.363 einstaklingar skráðir án atvinnu í nóvember. Rúmlega 16.800 einstaklingar á Íslandi eru með 75% örorku eða meira, en það sem slær mig mest er sú staðreynd að frá 1. október 2008, frá hruni, fram til 1. nóvember 2010 hafa rúmlega 20.500 einstaklingar yfirgefið landið, horfið héðan og eru líklega farnir að stunda vinnu í öðrum löndum. Þessari þróun verðum við að snúa við.

Ég spurði jafnframt hvort til væru tölur um það að annar makinn byggi hér heima og hinn stundaði vinnu erlendis. Hér kemur fram að rúmlega 1.500 einstaklingar eru í þeirri stöðu. Samt segir í svarinu að ekki liggi fyrir hvers vegna lögheimili þessara einstaklinga eru úti og makinn með lögheimili hér heima. Það eru ekki til tölur yfir það og ég er mjög undrandi yfir því að Vinnumálastofnun skuli ekki hafa þessar upplýsingar.

Ríkisstjórnin er verklaus í atvinnumálum. Þessari þróun verðum við að snúa við. Ég hvet ríkisstjórnina til verka en það er kannski ekki von á að það sé hægt þar sem mikil ólga er innan hennar. Við verðum að snúa vörn í sókn, við verðum að efla almenna vinnumarkaðinn því að það er hann sem ber uppi samfélagið. Kratar hafa bara kunnað að skapa opinber störf og þeirri stefnu halda þeir áfram. [Hlátur í þingsal.]