stefna Íslands í málefnum norðurslóða.
Frú forseti. Klaus Neumann verður seint sakaður um að vera langt til vinstri. Eigi að síður lagði hann mjög mikla áherslu á aukið samstarf við Rússa. Að því er varðar Norðmenn og Rússa er alveg ljóst að þar fara ákveðnir hagsmunir saman. Á þeim svæðum sem deilt var um í Barentshafinu og enn norðar er að finna miklar olíu- og gaslindir og þeir ákváðu þess vegna að ljúka 47 ára gamalli deilu, öllum að óvörum, í september sl. Í kjölfarið flutti Pútín ræðu um norðurslóðir. Það var fyrsta ræða um þær sem rússneskur leiðtogi hafði flutt síðan Gorbatsjov flutti sína frægu ræðu 1987.
Það er ljóst að það eru gagnkvæmir hagsmunir sem Rússar og Norðmenn hafa af því að draga úr viðsjám, bæði efnahagslegir en ekki síður öryggishagsmunir sem ég tel að ráði að sumu leyti afstöðu Norðmanna. Þessi samstaða þeirra hefur í sjálfu sér ekki bitnað á okkur (Forseti hringir.) en hins vegar get ég sagt að í þessu máli vildi ég að Norðmenn elskuðu okkur dýpra.