139. löggjafarþing — 60. fundur,  18. jan. 2011.

stefna Íslands í málefnum norðurslóða.

337. mál
[15:47]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessari umræðu eins og ég sagði í fyrsta andsvari mínu. Ég bið jafnframt hv. þingmenn um að hlusta á það sem ég segi því að ég varaði við því sem ég kem til með að fara yfir í ræðu minni, áhuga Evrópusambandsins á þessum málum og þeirrar tengingar að nú liggur fyrir umsókn hjá Evrópusambandinu eða aðlögunarferli Íslendinga að sambandinu. Ég fer yfir þetta í ræðu á eftir vegna þess að Evrópusambandið hefur ekki aðild að þeim samningum sem nú standa yfir.

Það er réttur hverrar þjóðar að njóta auðlinda sinna og sá réttur er verndaður í þjóðarrétti. Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem haldið var hvorki meira né minna en 1962 var samþykkt yfirlýsing sem fjallar um sjálfstæði þjóða til að ráðstafa sjálfar náttúruauðlindum sínum. Sá réttur er mjög mikilvægur fyrir þjóð eins og okkur, sér í lagi vegna þess hvar Ísland er á landakorti heimsins. Þetta hef ég margítrekað hér, bæði í ræðum og greinum, og þreytist ekki á að benda á það. Eins og við vitum, talandi um sjávarútvegsauðlindina, er t.d. heildarafli íslenska flotans, okkar Íslendinga, 40% af öllum sjávarafla ESB-ríkjanna. Við skulum ekki gleyma því og ekki horfa fram hjá því. Einungis það eitt og sér gerir Ísland mjög eftirsóknarvert í Evrópusambandinu og við bætist svo það mál sem er á dagskrá og nú til umræðu, frú forseti, tillaga til þingsályktunar um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.

Þar sem aðeins hefur verið komið inn á hernaðarlegt mikilvægi norðurpólsins langar mig til að nefna að tæpast er hægt að bera saman málefni norðurslóða og suðurskautsins því að þeir hagsmunir sem þar eru í húfi eru svo mismunandi. Aðalauðlindin á suðurpólnum eru vísindamenn, vísindamenn sem rannsaka hin ýmsu mál er snúa að umhverfinu. Þeir gera það á heimsvísu og hafa komist að mjög merkilegum niðurstöðum. Rannsóknirnar hófust í kjölfar alþjóðlega jarðeðlisársins sem var 1957 og náði út árið 1958. Þegar málefni suðurpólsins létu á sér kræla meðal þjóða þá eyddu þau þjóðlönd sem áttu aðgang að suðurskautinu aðallega kröftum sínum í deilur um yfirráðarétt á suðurheimskautinu og í kjölfarið skapaðist mjög hættulegt ástand þar. Allt snýst þetta um yfirráð, yfirráð yfir landsvæðum og auðlindum. Þessu stöndum við nú frammi fyrir, akkúrat sömu atriðum, varðandi norðurpólinn og norðurslóðir sem er verið að reyna að ná samkomulagi um.

Öldurnar lægði ekki í kringum suðurskautið fyrr en þær 12 þjóðir sem gerðu tilkall til suðurskautsins náðu samkomulagi og undirrituðu suðurskautssamninginn árið 1959. Í samningnum er aðaláhersla lögð á friðsamlega og vísindalega nýtingu álfunnar. Um þetta þarf ekki að ræða varðandi norðurslóðir því að suðurskautið er eins og við vitum illaðgengileg heimsálfa og má segja öll ísilögð. En þar eru mikilvægar minjar og hefur hún að mestu verið friðuð. Þessu er ekki til að dreifa á norðurpólnum því að þar er náttúrlega fyrst og fremst sú mikilvæga siglingaleið sem er að opnast og allar þær vísbendingar sem hafa komið í ljós um að þar finnist olía, gas og jafnvel annað á hafsbotninum sem engin verðmæti eru í nú en kemur til með að verða verðmætt.

Út um allan heim hefur orðið vakning um gildi auðlinda, ekki síst hér á landi. Þess vegna verður kapphlaupið um norðurpólinn jafnvel æsilegt þótt þjóðir heims séu að reyna að ná samkomulagi um svæðið nú um stundir.

Mig langar til að fjalla um þann kafla sem er unninn af Vali Ingimundarsyni prófessor. Ég kynnti hann til sögunnar áðan og það sem hann hefur að segja um Evrópusambandið. Í þessari vönduðu þingsályktunartillögu fer hann yfir samantekt varðandi þau ríki sem um málið eiga að fjalla. Það sem hann segir um Evrópusambandið er svo, með leyfi forseta:

„Evrópusambandið hefur fengið meiri áhuga á norðurslóðum í samræmi við vaxandi strategískt mikilvægi svæðisins. ESB er að vinna norðurslóðastefnu, en helstu þættir hennar hafa komið fram á síðustu tveimur árum. Framkvæmdastjórn ESB hefur sótt um fasta áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu (ásamt Kína, Japan, Kóreu og Ítalíu), en Kanadamenn hafa enn sem komið er staðið í vegi fyrir því.“ — Þ.e. að þeir fái þessa áheyrn. — „Framkvæmdastjórnin gaf út „norðurslóðayfirlýsingu“ í nóvember 2008 þar sem meginmarkmið ESB í málefnum norðurslóða kom fram. Þar er lögð áhersla á að vinna skuli að alþjóðlegri stjórnun norðurskautsins og að auðlindir þess verði nýttar á grundvelli sjálfbærni og jafnræðis.“

Svo kemur hér, með leyfi forseta, það sem ég ætla að draga sérstaklega út úr:

„ESB telur að sambandið hafi „viðbótargildi“ (added value) sem áheyrnaraðili að Norðurskautsráðinu og virkur þátttakandi í störfum þess. Evrópusambandið hefur ekki beitt þrýstingi til að hafa áhrif á málefni norðurslóða; skilningur er á því innan ESB að þar sé fyrir ríkjahópur sem hefur sérstöðu.“

Að mínu mati er Evrópusambandið farið að taka sér vald þarna því að aðeins þrjú ríki ESB teljast norðurslóðaríki, þ.e. Danmörk, Finnland og Svíþjóð, eins og ég kom að í andsvari við hæstv. utanríkisráðherra fyrr í dag. Þess ber þó að geta að Grænland telst ekki til ESB þannig að hlutverk Danmerkur er verulega skilyrt. Það er því ekkert ESB-ríki strandríki á norðurslóðum. Ísland er hins vegar skilgreint sem strandríki og það á hæstv. utanríkisráðherra vel að vita og býr yfir 40% afla alls Evrópusambandsins. Það er því mikill akkur fyrir Evrópusambandið að Ísland gangi til liðs við sambandið vegna þeirra gríðarlegu auðlindahagsmuna og þeirrar auðlindakistu sem liggur í norðurhöfum og Ísland er aðili að. Þetta verðum við að hafa hugfast þegar viðræður við ESB eru skoðaðar. Það eru ekki bara þeir hagsmunir sem snúa að landbúnaði og búsetuskilyrðum í landinu sem skipta máli heldur sú auðlindakista sem við höfum hér sem þjóð vegna legu landsins, enda skulum við ekki gleyma því að Ísland er á norðurslóðum en Evrópa liggur mun sunnar.

Ég vildi fara yfir þetta. Evrópusambandið hefur sinnt málefnum norðurskautsins varðandi loftslagsheimildir og annað, umhverfisvernd og siglingavernd. Er það af hinu góða því að við verðum að ná einhverri sátt um þetta svæði. Ég er talsmaður þess. Vonandi brjótast ekki út óeirðir vegna þeirra hagsmuna sem þarna liggja. Ég vil minna á að þjóðir hafa yfirleitt farið í stríð vegna lands eða einhverra annarra gæða sem þær berjast um.

Ég er bjartsýn á framtíðina. Við náum vonandi góðum samningum. Ég veit að þeir aðilar sem sitja í ráðinu fyrir okkar hönd eru góðir samningamenn. En þetta vildi ég koma inn á.

Annað finnst mér áhugavert að nefna, það er réttur frumbyggja á norðurslóðum. Réttur frumbyggja hefur ekki verið mikils metinn hingað til, t.d. í Ástralíu, Kanada og Bandaríkjunum, en undir dyggri stjórn Hillary Clinton hefur réttur frumbyggja verið sérstaklega varinn, en það eru fyrst og fremst frumbyggjar sem búa á þessu svæði núna. Annað sem er áhugavert er að frumbyggjar veiða mikinn sel og hval. Þær vísanir í ESB að t.d. Íslendingar og fleiri verði að hætta að veiða sel og hval hafa mætt mikilli andstöðu hjá þeim frumbyggjum sem þarna eru. Hagsmunirnir fara því ekki alveg saman í þessu máli, ESB-ríkjanna að annars vegar og Íslendinga, frumbyggja Grænlendinga, Færeyinga og Norðmanna hins vegar.

Ég fagna þessari þingsályktunartillögu en hef þann vara á að við megum ekki undir neinum kringumstæðum semja af okkur. Ég var mjög fylgjandi þeirri tillögu sem kom hér fram varðandi eflingu Háskólans á Akureyri því að ef það eru ekki Íslendingar sem eiga að taka forustu í (Forseti hringir.) rannsóknum á norðurhöfum þá veit ég ekki hverjir. Ég fagna tillögunni, en vara samt við ásælni ESB í akkúrat þær auðlindir sem ég nefndi.