139. löggjafarþing — 60. fundur,  18. jan. 2011.

rannsóknarnefnd um aðdraganda ákvörðunar um stuðning Íslands við innrásina í Írak árið 2003.

147. mál
[17:50]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það vekur auðvitað athygli að hv. þingmenn sýni þeim ákvörðunum sem teknar voru á árinu 2003 svo mikinn áhuga á árinu 2011 að þeir leggi það til að rannsakaður verði aðdragandi og ástæður þess að þáverandi hæstv. ríkisstjórn ákvað að lýsa yfir stuðningi við innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak „án nokkurs samráðs við Alþingi“ eins og segir í tillögunni.

Eins og menn kannski muna sneri sú stuðningsyfirlýsing að því að Íslendingar mundu taka þátt í borgaralegum verkefnum sem lutu að uppbyggingu í Írak en ekki í hernaðarlegri þátttöku, enda hafa Íslendingar hvorki né höfðu á þeim tíma neinn her eða bolmagn til að taka þátt í neinum stríðsátökum.

Í tillögunni er fyrst og fremst vikið að þætti hæstv. þáverandi forsætisráðherra og hæstv. þáverandi utanríkisráðherra, þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Þeir hafa svo sem eftir að þessi ákvörðun var tekin, tel ég, gert grein fyrir ákvörðunum sínum og því hvernig að þeim var staðið. Hv. 1. flutningsmaður málsins kann að vera ósammála mér um það en úr því að þessi þingsályktunartillaga er komin fram langar mig til að spyrja hann hverju þessi rannsókn eigi að skila. Ef það kemur í ljós að ekki hafi verið staðið með fullnægjandi eða löglegum hætti að þessum ákvörðunum, mun það þá að mati hv. þingmanns hafa einhverjar afleiðingar í (Forseti hringir.) för með sér fyrir viðkomandi?